Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Sigurgeir Þorkelsson skrifar 22. júní 2026 17:45 Tilfærsla ferja milli landshluta hefur ekki vakið mikla kátínu. Samsett Áfram eru tafir á viðgerðum á Herjólfi vegna seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi. Innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, leitar nú leiða til að tryggja að rekstraraðilar Herjólfs eigi til aukalegan varamótor fyrir Herjólf hér á Íslandi.
Fréttir bárust þann þrettánda júní síðastliðinn að viðgerðir Herjólfs myndu tefjast um þrjár vikur. Samningsbundið að Baldur leysi Herjólf af Ferjan Baldur mun áfram vera staðgengill Herjólfs. Baldur siglir venjulega milli Stykkishólms og Brjánslækjar á sunnanverðum Vestfjörðum með viðkomu í Flatey. Báturinn Særún leysir mun halda áfram siglingum til Flateyjar til að tryggja þjónustu við íbúa og atvinnulíf á svæðinu. Særún býr þó ekki yfir getu til að ferja bifreiðar, ólíkt Baldri. Særún hefur leyfi til að flytja 115 farþega en hefur auk þess flutt vörur, neysluvatn, fiskikör og annan farm til Flateyjar. Ráðherra leitar sátta við Breiðafjörð Í tilkynningu frá ráðuneyti samgöngumála kemur fram að ráðherra, Eyjólfur Ármannsson, hafi fyrir helgi átt fund með bæjarstjórum í sveitarfélögum við Breiðafjörð og farið yfir stöðu mála. „Undanfarnar vikur hafa skapast erfiðar og ófyrirséðar aðstæður í ferjusiglingum til Vestmannaeyja sem hafa óhjákvæmilega haft áhrif á ferjusiglingar á Breiðafirði. Ég hef fullan skilning á þeim erfiðleikum sem fjarvera Baldurs hefur í för með sér fyrir atvinnulíf, flutninga og daglegt líf á svæðinu,“ er haft eftir Eyjólfi í tilkynningunni. „Samkvæmt samningum er Baldur skilgreindur sem varaskip fyrir Herjólf og sú ákvörðun að kalla hann til Vestmannaeyja byggir á öryggissjónarmiðum. Með aðeins eina vél starfhæfa þolir Herjólfur litla ölduhæð og vind áður en loka þarf fyrir siglingar í Landeyjahöfn.“ Tilfærsla Baldurs hefur hingað til ekki vakið mikla kátínu í kjördæmi Eyjólfs, Norðvesturkjördæmi.
Vestmannaeyjar Stykkishólmur Landeyjahöfn Herjólfur Ferjan Baldur Flatey Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira