Ísland fær martröð (örsaga) Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 24. júní 2026 09:01 Ísland hafði átt erfiðan dag, það var þreytt og allir að nöldra í því, það var niðurdregið og lítið í sér, enda höfðu sumir verið að tala um að það stæði sig ekki nógu vel og ætti kannski bara að flytja heim til „mömmu“ aftur. Með allt þetta í kollinum sofnaði Ísland loksins þegar langt var liðið á nótt. Íslandi dreymdi að það væri heima hjá „mömmu“ að reyna að semja um að flytja aftur heim, það vissi samt fullvel að það var fátt að semja um, það lá á borðinu fyrirfram. Ísland vissi líka að ef það flytti til „mömmu“ gæti það sennilega aldrei flutt aftur burt, hvorki börnin né afkomendur þeirraum ókomna framtíð, svo þetta var ekki ákvörðun sem mætti taka í fljótfærni. Ísland þyrfti að borga heim, annað væri ekki sanngjarnt, en á móti kemur að það getur fengið styrki frá „mömmu“, til dæmis ef það vantaði ný föt í vinnuna, en Ísland myndi eignast 27 hálfsystkini og sum þeirra hafa lægri laun en Ísland svo stundum fær það ekki styrki sem það sækist eftir. Ísland má borða heima en þá ræður „mamma“ hvað er í matinn en auðvitað má Ísland borða annars staðar en þá þarf það að borga meira en það þurfti áður en það flutti heim. Ísland má eiga vini en helst bara vini sem „mamma“ er hlynnt svo Ísland þarf að hætta að umgangast suma vini sína og vera meira kammó við vini „mömmu“. Það þarf líka að kaupa hluti frá vinum „mömmu“ nema nú þyrfti að borga miklu meira fyrir þá en áður Það eru skoðanir „mömmu“ sem gilda út á við og Ísland verður að leyfa mömmu að tala og ákvarða fyrir sína hönd, nú er bara einn fulltrúi fyrir heimilið sem fer og talar og semur við aðra eins og „mamma“ vill, Ísland og systkini þess geta reynt að mótmæla en eru þá oft beitt þrýstingi eða fá ekki styrkina sína eins og lofað var, það þarf samt að borga heim. Það er ekki vinsælt að vera ósammála „mömmu“ Ísland á eignir, jörð með vatni og leyfi til að veiða fisk, það átti fossa og óspillt land, nú þurfti Ísland að leyfa „mömmu“ og systkinum sínum að ráðstafa því með því, jú, það átti þetta allt enn svona að nafninu til, því hvernig eign er það sem þú mátt ekki ráðstafa sjálfur? Ísland var mjög hugsi og bylti sér í svefni og umlaði nei, nei. Ísland mátti, ja, eða átti að taka upp sér gjaldmiðil heimilisins. Flest systkini þess höfðu gert það en það hafði gengið misvel. Ísland vissi þetta vel en ákvað að skoða málið samt. En fyrst þurfti Ísland að laga til í fjármálunum hjá sér, þau voru í smá ólestri og Ísland borgaði háa vexti, það gat fengið lán hjá „mömmu“ til að laga þetta og hafði tvö ár til að sýna að því væri treystandi til að taka upp heimilisgjaldmiðilinn. Ísland þarf líka að setja merki „mömmu“ á næstum alla hluti, vegabréf, bílinn og á þá hluti sem hún styrkir Ísland um. Það á að sjást og vera öllum ljóst að Ísland tilheyri „mömmu“. Ísland vaknar upp með andfælum, með hraðan hjartslátt og erfitt með andardrátt eins og eitthvað þungt hvíli á því. En guði sé lof, þetta var bara draumur, vond martröð. Ísland fer á fætur og fær sér hreint ókeypis vatn úr krananum til að róa sig, en það er hugsi. það þarf að gera eitthvað í sínum málum, það lagar sér morgunmat og fær sér kaffi, byrjar að skrifa niður hvað þarf að gera, pantar tíma hjá bankaráðgjafanum til að koma fjármálunum í lag, setur sér markmið til að minnka útgjöldin sín, strangar reglur, þetta verður vissulega erfitt en Ísland getur þetta og það getur það sjálft og þarf ekki að beygja sig undir strangari reglur annarra, það getur borið höfuðið hátt, sjálfstætt og frjálst með yfirráð yfir sínum eignum og fjármálum og getur gert samninga við vini sína beint, eins og það hefur alltaf gert. Ísland er ekki lítið í sér lengur, enda engin þörf á. Ísland hringir í mömmu til að láta vita að það ætlir ekki að flytja heim, en lofar að koma oft í heimsókn, enda hefur samband þess við mömmu og hálfsystkinin 27 alltaf verið gott. Í gleði sinni yfir því að þetta hafi verið draumur og að hafa tekið ákvarðanir til að koma sínum málum í betri jarðveg, hringir það í vini sína og býður þeim í veislu til að fagna, á morgun ætlar það að setja allt á fullt og þá er gott að eiga vini. Ísland lifði hamingjusamt alla tíð upp frá því. ENDIR Höfundur er félagi í Til Vinstri við ESB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun