Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Lovísa Arnardóttir skrifar 25. júní 2026 11:43 Svona mun Stóra Hraun líta út þegar það verður tilbúið. Stjórnarráðið Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), óskar eftir tilboðum fyrirtækja eða teyma fyrirtækja í almennu útboði sem felur í sér jarðvinnuframkvæmd á nýju öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg. FSRE óskar eftir tilboðunum fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Útboðið opnar í dag og stendur til 20. ágúst.
Í tilkynningu á vef opinberra útboða kemur fram að um sé að ræða almennt útboð samkvæmt lögum um opinber innkaup og að það sé auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkið felur meðal annars í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja, afvötnun svæðis, jarðvinnu fyrir mannvirki fyrsta áfanga, fyllingar, jarðvegsskipti og uppsetningu ytri netgirðingar. Eigi að rýma 128 fanga Í tilkynningu kemur jafnframt fram að fyrirhugað sé að byggja nýtt öryggisfangelsi á háu öryggisstigi sem eigi að rýma 128 afplánunarfanga. Nýtt öryggisfangelsi á að leysa af núverandi fangelsi að Litla-Hrauni sem til samanburðar er átta deildir og hýsir 83 karlfanga. Í tilkynningu segir að nýja öryggisfangelsinu hafi verið valin staðsetning í landi Stóra-Hrauns í sveitarfélaginu Árborg. Aðkoma að fangelsinu verði frá Gaulverjabæjarvegi (33). Öryggisfangelsið verður byggt í tveimur áföngum; fyrst verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús, hliðbyggingu, sem og gesta-/starfsmannabílastæði. Í seinni áfanga verður byggð öryggisdeild sem rúmar 16 fanga, fyrirmyndardeild sem rúmar 56 fanga, aðra vinnustofu, starfsmannahús og sér starfsmannabílastæði. Rætt var við dómsmálaráðherra um uppbyggingu fangelsins í nóvember. Þá sagði hún útboð á næsta leiti og að hún væri að skoða kostnað vegna uppbyggingar og hvernig mætti ná honum niður. Í fréttum í nóvember árið 2024 var greint frá því að kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns væri áætlaður um sautján milljarðar króna. Mikið álag hefur verið á fangelsiskerfinu síðustu ár. Fangaverðir sögðu í yfirlýsingu í apríl að kerfið væri komið að þolmörkum. Erfiðara væri að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Dæmi séu um að fjórtán fangar dvelji á deild fyrir átta og að fangar þurfi að dvelja í einangrun eða á lögreglustöðvum langtímum við ófullnægjandi aðstæður.
Fangelsismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Árborg Rekstur hins opinbera Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira