Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Lovísa Arnardóttir skrifar 25. júní 2026 12:25 Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri. Vísir/Lýður Valberg Samþykkt var á fundi borgarráðs í dag að leggja niður svið samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg og mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu á að segja upp um tuttugu manns í dag. Von er á fréttatilkynningu um málið um klukkan 16 í dag.
Tíu manns hefur verið sagt upp á skrifstofu samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg. Sviðið hefur verið lagt niður og einhverjum sagt upp á meðan starfsmenn á sviði viðburða hafa verið fluttir til. Þá hefur mannréttindaskrifstofa borgarinnar verið lögð niður en Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri, er þó ekki meðal þeirra sem var sagt upp í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu er fjöldinn nær tuttugu sem á að segja upp í dag í ráðhúsinu og eru uppsagnir enn í gangi. Borgarfulltrúar í meiri- og minnihluta hafa veigrað sér við því að svara fyrirspurnum fréttastofu um málið og hafa öll vísað til þess að geta ekki tjáð sig fyrr en fundargerð borgarráðs verður birt á vef borgarinnar um klukkan 16. Þau séu bundin trúnaði þar til hún verður birt. Ekki óskað eftir vinnuframlagi Meðal þeirra sem störfuðu á sviði samskipta og viðburða eru upplýsingafulltrúar borgarinnar. Þeir voru sjö og hefur öllum verið sagt upp. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir hefur síðustu ár starfað sem samskiptastjóri og undir henni störfuðu svo sex upplýsingafulltrúar á hverju sviði fyrir sig. Samkvæmt heimildum fréttastofu tekur breytingin gildi strax og hefur ekki verið óskað eftir áframhaldandi vinnuframlagi þeirra. Starfsfólk á sviðinu fékk í morgun bréf um fyrirhugaðar breytingar og var svo kallað á fund borgarritara Þorsteins Gunnarssonar. Auk upplýsingafulltrúa var starfsfólki á sviðinu sagt upp sem hefur sinnt ljósmyndun og myndbandagerð. Nýr meirihluti tók við eftir kosningar sem hefur talað fyrir hagræðingu í rekstri borgarinnar. Á fyrsta fundi borgarráðs var skipaður hagræðingarhópur sem hefur það hlutverk að fara yfir rekstur borgarinnar. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, er formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrst kom fram í fréttinni að Önnu Kristinsdóttur mannréttindastjóra hefði verið sagt upp. Það er ekki rétt. Leiðrétt klukkan 14:45.
Reykjavík Borgarstjórn Mannréttindi Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira