Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Atli Ísleifsson skrifar 25. júní 2026 12:40 Flestar vörurnar í þessum vöruflokkum sem til skoðunar eru hafa hækkað um 20 til 40 prósent á síðustu tveimur árum og nokkrar um meira en 40 prósent. Vísir/Lýður Verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ.
Í tilkynningu frá ASÍ segir að miklar verðlækkanir á kakó og sykri undanfarið virðast ekki hafa skilað sér í smásöluverð. Hækkanirnar á þessum vörum hafi því verið mun meiri en almenn verðbólga á tímabilinu og sýni að neytendur greiða nú umtalsvert meira fyrir vörur sem lengi hafi verið fastur liður í innkaupakörfu íslenskra heimila. „Könnunin sýnir að verðhækkanirnar eru víðtækar. Flestar vörurnar í þessum vöruflokkum sem til skoðunar eru hafa hækkað um 20–40% á síðustu tveimur árum og nokkrar um meira en 40%. Engin þeirra vara sem skoðaðar voru lækkuðu í verði á tímabilinu. Hækkanir hjá öllum vörumerkjum Þegar litið er til einstakra vörumerkja mældist meðalhækkunin á bilinu 31–35%. Mest var hækkunin hjá Freyju, þar sem þær vörur sem skoðaðar voru hækkuðu að meðaltali um 34,5%, en meðalhækkun á vörum Góu og Lindu voru 32,5% og 30,8% á vörum frá Nóa Síríus. Verð á vörum frá Sanbó og Kólus hækkuðu minnst eða um 4,2% frá 2024. Niðurstöðurnar benda því til þess að verðhækkanirnar séu ekki bundnar við einstaka framleiðendur eða vörur heldur endurspegli almenna þróun á markaðnum. Nói Síríus steig nýlega fram og tilkynnti 10% lækkun á verðum frá 1.júní 2026, engar slíkar verðlækkanir hafa verið boðaðar af Freyju eða Góu. Ólík þróun milli ára Þótt heildarhækkunin sé svipuð milli vörumerkja var þróunin ólík eftir tímabilum. Hjá Nóa Síríus og Freyju varð stærstur hluti hækkananna á tímabilinu frá 2024 til 2025, en hjá Góu og Linda komu meiri hækkanir fram á síðari hluta tímabilsins, frá 2025 til 2026. Þetta sýnir að verðhækkanir á markaðnum hafa ekki komið fram á sama tíma hjá öllum fyrirtækjum heldur dreifst yfir lengra tímabil. Miklar lækkanir á kakóverði undanfarið Hækkanir á sælgæti komu fram í kjölfar fordæmalausra hækkana á kakóverði á heimsmarkaði á árinu 2024 og fram til janúar 2025 þegar toppnum var náð og nam hækkunin á árinu 2024 um 140%. Frá þeim tíma hefur kakóverð hins vegar lækkað talsvert frá hæstu gildum sínum og er verðið nú lægra en áður en verðhækkunarhrinan hófst og hefur kakóverð lækkað um 61% frá hæstu gildum. Niðurstöður verðkönnunar ASÍ sýna hins vegar að verð á súkkulaði- og sælgætisvörum hér á landi hefur haldið áfram að hækka, meðal annars á tímabilinu 2025–2026. Það bendir til þess að áhrif hækkana á hrávörumörkuðum hafi enn ekki gengið að fullu til baka í verði til neytenda. Afkoma flestra fyrirtækjanna hefur styrkst Á sama tíma og verð á súkkulaði og sælgæti hefur hækkað um 32,7% að meðaltali frá júní 2024 hafa stærstu framleiðendur landsins almennt skilað bættri afkomu. Í ársreikningum fyrirtækjanna kemur fram að hækkandi kakóverð á heimsmarkaði hafi haft veruleg áhrif á reksturinn og að gripið hafi verið til verðhækkana til að mæta auknum kostnaði. Þrátt fyrir þær áskoranir jókst hagnaður Freyju um 548% árið 2024. Hagnaður Góu-Lindu jókst um 50% og hagnaður Nóa-Síríusar um 71% á síðasta rekstrarári, á meðan hagnaður Kólus ehf drógst saman um 41% árið 2024. Afkoma fyrirtækjanna og verðþróun til neytenda eru ekki sambærilegar stærðir og ekki er unnt að draga beina ályktun um orsakasamhengi af þessum gögnum einum. Niðurstöðurnar sýna þó að á sama tíma og neytendur hafa þurft að greiða sífellt hærra verð fyrir súkkulaði- og sælgætisvörur hefur afkoma stærstu fyrirtækjanna í greininni almennt styrkst. Neytendur enn að greiða hærra verð Þrátt fyrir að mesti óróinn á kakómarkaði sé að baki og afkoma fyrirtækjanna hafi almennt styrkst sýnir verðkönnun ASÍ að neytendur greiða enn sífellt hærra verð fyrir súkkulaði og sælgæti. Það undirstrikar mikilvægi þess að fylgjast með því hvernig breytingar á kostnaði og hrávöruverði skila sér í verði til neytenda – bæði þegar kostnaður hækkar og ekki síður þegar hann lækkar,“ segir í tilkynningu Alþýðusambands Íslands.
Sælgæti Matvöruverslun Neytendur Mest lesið „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Neytendur Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Einungis sjö bílar kallaðir inn Kaupmáttur heldur áfram að aukast Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira