Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 12:53 J.D. Vance lætur fara vel um sig í sófa til hliðar við Donald Trump Bandaríkjaforseta. AP/Jacquelyn Martin Varaforseti Bandaríkjanna segist ekki skilja hvernig Watergate-hneysklið, þekktasta stjórnmálahneyksli í sögu Bandaríkjanna, felldi Richard Nixon. Ef málið kæmi upp í dag yrði það að fréttamáli í hálfan dag.
Ummælin lét J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, falla á bókakynningu fyrir nýja bók hans í forsetabókasafni Richard Nixon í gær. Nixon sagði af sér embætti forseta árið 1974 vegna Watergate-málsins svonefnda. Sagði Vance að Nixon væri að fá uppreist æru á síðari árum og að það væri verðskuldað. „Ef Watergate ætti sér stað á morgun væri það fréttamál í tólf klukkustundir. Hugmyndin um að það gæti tekið niður forseta er klikkuð,“ sagði Vance. JD Vance: "I think Nixon's historical legacy is enjoying a bit of a renaissance, and deservedly so. I joked that if Watergate happened tomorrow, it would be like a 12 hours news story. The idea that it took down a presidency is crazy."[image or embed]— Aaron Rupar (@atrupar.com) June 25, 2026 at 9:03 PM Nixon sagði af sér vegna tilrauna sinna til þess að hylma yfir eigin hlutdeild og embættismanna hans í innbroti á skrifstofum Demókrataflokksins í Watergate-byggingunni í Washington-borg. Innbrotsþjófarnir, sem voru á vegum endurkjörsnefndar Nixon, komu fyrir hlerunarbúnaði á skrifstofunni en voru gripnir glóðvolgir. Í framhaldinu kom í ljós að undirsátar Nixon njósuðu og skemmdu fyrir andstæðingum og notuðu til þess fjármuni frá endurkjörsnefnd forsetans. Forsetinn og undirsátar hans lugu um aðild þeirra að innbrotinu, eyddu sönnunargögnum og mútuðu innbrotsþjófunum til þess að þegja. Þá rak Nixon sérstakan saksóknara sem rannsakaði Watergate-málið. Sama „djúpríki“ reynt að taka niður Trump Vance hélt áfram og sagði Nixon hafa verið fórnarlamb „djúpríkisins“ á svipaðan hátt og gerðist á fyrra kjörtímabili Donalds Trump. „Djúpríki“ er samsæriskenning sem gengur út á að embættismannakerfi og samkrull spilltra afla stjórni öllu á bak við tjöldin. „Það er hliðstæða þarna á milli,“ sagði Vance og fullyrti að „sama fólk og stofnanir og tóku niður Nixon“ hefðu reynt að gera það sama við Trump. Óljóst er hvað Vance átti við þar. Bandaríkjaþing kærði Trump í tvígang fyrir embættisbrot á fyrra kjörtímabili hans en öldungadeild þess sýknaði hann í bæði skipti. Nixon sagði af sér áður en þingnefnd gat gefið út kæru á hendur honum. Almennt er talið að þáverandi aðstoðarforstjóri alríkislögreglunnar FBI hafi verið einn helsti heimildarmaður Washington Post-blaðamanna sem voru leiðandi í fjölmiðlaumfjöllun sem hélt lífi í hneykslismálinu.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira