Handbolti

Ást­hildur Jóna með tíu mörk á HM og Ís­land í undan­úr­slit Forsetabikarsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir átti frábærn leik í nótt og kom með beinum hætti að fjórtán mörkum íslenska liðsins.
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir átti frábærn leik í nótt og kom með beinum hætti að fjórtán mörkum íslenska liðsins. IHF

Valskonan Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir átti stórleik þegar íslenska tuttugu ára landslið kvenna í handbolta vann sinn þriðja leik í röð á heimsmeistaramótinu í Kína.

Ísland vann tíu marka sigur á Alsír, 33-23, eftir að hafa verið 17-10 yfir í hálfleik.

Íslensku stelpurnar töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum á mótinu en hafa síðan unnið stórsigra á Bandaríkjunum, Gíneu og nú Alsír.

Sigurinn þýðir að íslensku stelpurnar eru komnar áfram í undanúrslit Forsetabikarsins sem er keppni liða um 17. til 20. sætið á mótinu. Ísland mætir Egyptalandi í undanúrslitaleiknum.

Ásthildur Jóna skoraði tíu mörk úr ellefu skotum í leiknum og átti einnig fjórar stoðsendingar. Aðeins eitt marka hennar kom úr víti.

Guðrún Hekla Traustadóttir nýtti öll sjö skotin sín og Hulda Hrönn Bragadóttir skoraði fjögur mörk.

Birna María Unnarsdóttir, Ásdís Halla Hjarðar og Sara Lind Fróðadóttir skoruðu allar tvö mörk.

Elísabet Millý Elíasardóttir varði 10 skot eða 42 prósent skotanna sem komu á hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×