Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. júlí 2026 08:36 Einar Þorsteinsson er forseti borgarráðs. Samsett/Vilhelm Borgarráð hefur hafnað áformum um frekari uppbyggingu í Grafarvogi. Íbúar hafi lagst gegn áformunum og séu margir orðnir brenndir af vinnubrögðum síðasta meirihluta borgarinnar.
Á fundi borgarráðs í gær voru teknar fyrir tvær tillögur um breytingu á deiliskipulagi í Grafarvogi þar sem til stóð að byggja íbúðarhúsnæði við Starengi og Hverafold. Umræddar tillögur voru fyrst sendar til umhverfis- og skipulagssviðs af fyrrverandi meirihluta Reykjavíkurborgar sem samanstóð af fulltrúum Samfylkingar, Flokks fólksins, Pírata, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Viðreisnar leggst hins vegar gegn þéttingaráformum í hverfinu og afgreiddi borgarráð því ekki tillögurnar. Þess í stað var henni hafnað og vísað aftur í umhverfis- og skipulagsráð. „Fyrirliggjandi tillaga er hluti af þéttingaráformum fyrri meirihluta í Grafarvogi. Íbúar í Grafarvogi hafa ítrekað lýst yfir skýrri andstöðu við áform um þéttingu innan hverfisins og eru margir orðnir brenndir af vinnubrögðum tveggja síðustu meirihluta,“ segir í bókun fulltrúa meirihlutans í fundargerð. Andstaða meðal íbúa Fyrstu hugmyndir um aukna uppbyggingu í Grafarvogi voru kynntar íbúum árið 2024. Íbúar reyndust afar óánægðir með fyrirhugaðar breytingar. Fyrst um sinn var gert ráð fyrir 476 nýjum íbúðum en seinna meir var þeim fækkað niður í 340. Eitt af kosningamálum nýja meirihlutans var að draga úr þéttingunni. „Íbúar Grafarvogs hafa jafnframt ítrekað lýst áhyggjum af því að leiðir inn og út úr hverfinu séu sprungnar og á meðan ekki hefur verið fundin lausn á því máli er tómt mál að tala um að fjölga íbúum í hverfinu. Mikilvægt er að virða vilja nærumhverfisins og horfa fremur til uppbyggingar á nýjum svæðum þar sem hægt er að byggja upp húsnæði með betri heildarsýn, sterkari innviðum og minni neikvæðum áhrifum á gróin hverfi,“ segja fulltrúar meirihlutans í bókuninni. Vegna þessa sé tillögunni hafnað og henni vísað aftur í umhverfis- og skipulagsráð. Fulltrúar meirihlutans í borgarráði eru Einar Þorsteinsson, Björg Magnúsdóttir, Bjarni Guðjónsson og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir. Þörf á húsnæði Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins sem var í meirihluta á liðnu kjörtímabili, gagnrýnir ákvörðunina í sinni eigin bókun. „Mikil þörf er á húsnæði á viðráðanlegu verði. Hluti af þróun húsnæðisuppbyggingar í Grafarvogi eru reitir þar sem fyrirhugað er að byggja upp óhagnaðardrifið húsnæði í samstarfi við óhagnaðardrifin uppbyggingarfélög og tryggja þannig fjölbreyttum tekjuhópum og tekjulágum þak yfir höfuðið og aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði,“ segir Sanna.
Húsnæðismál Reykjavík Borgarstjórn Skipulagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira