Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júlí 2026 08:19 Taylor Swift og Travis Kelce hafa verið saman fra haustinu 2023. EPA Tónlistarkonan Taylor Swift og fótboltakappinn Travis Kelce gengu í það heilaga í New York-borg í gærkvöldi. Gríðarstór veisla var haldin í Madison Square Garden en mikil leynd var yfir athöfninni. Grínistinn Adam Sandler gaf hjónin saman.
Kelce bað Swift í ágúst 2025 og fóru að berast fregnir fyrir nokkrum dögum að parið ætlaði að halda heljarinnar brúðkaup á Madison Square Garden-leikvellinum. Fregnir fóru að berast fyrir nokkrum dögum að Swift og Kelce stefndu á brúðkaup þessa helgi og við tók heljarinnar uppsetning fyrir utan leikvanginn. Til að mynda voru settar gardínur fyrir alla glugga leikvangsins, lögreglan girti af svæðið í kringum hann og voru allir jeppar með skyggðum rúðum. Fyrsti viðburðurinn var á fimmtudagskvöld þar sem talið er að um hundrað manns hafi verið boðið í eins konar fyrirpartý. Þá var athöfnin sjálf og stór veisla á föstudagskvöld þar sem talið er að um þúsund hafi verið á gestalistanum. Fjölmiðlafulltrúi Swift segir að brúðarkjóll hennar hafi verið hannaður af Jonathan Anderson, sem er hönnuður tískuhússins Christian Dior. Swift var ekki með brúðarmey heldur stóð Austin Swift, bróðir hennar, henni við hlið. Jason Kelce, bróðir Travis, var svaramaður brúðgumans. Fjöldi aðdáenda beið fyrir utan í von um að sjá þá sem sóttu brúðkaupið.Getty Fréttaveitan AP greinir frá því að töluverðum fjölda stórstjarna hafi verið boðið. Meðal gesta voru Bradley Cooper, Hugh Grant, Gigi Hadid, Karlie Kloss, Steven Spielberg, Camila Gbello og Tom Brady. Einnig er leikkonan Zoë Kravitz sögð hafa mætt en hún er núna sögð vera trúlofuð söngvaranum Harry Styles. Styles og Swift eru sögð hafa verið að stinga saman nefjum í nokkra mánuði árið 2012. Hjartaknúsarinn Hugh Grant og Anna Elisabet Eberstein.Getty Töluverð leynd var yfir athöfninni og veislunni sjálfri en parið tilkynnti að þau væru gengin í hjónaband með því að birta mynd á skjá fyrir utan leikvöllinn. Þar stóð „JUST&T MARRIED“ sem er vísun í nöfn hjónanna. Um leið og Travis og Taylor voru formlega gift birtist þessi mynd á skjám Madison Square Garden.AP Allir gestirnir sem mættu fóru inn í gegnum tjald svo spenntir aðdáendur sem stóðu fyrir utan gátu ekki rekið augun í þá. Eftir að gestirnir höfðu sýnt fram á að þeim væri í raun boðið voru allir símar teknir. Engar myndir hafa hingað til verið birtar úr brúðkaupinu sjálfu. Gestunum var ekið inn í tjald svo ekki sást hverjir voru mættir.Getty Samkvæmt boðskortinu gaf grínistinn Adam Sandler hjónin saman, ákvörðun sem kemur án efa nokkrum á óvart. Er hann kallaður vinur hjónanna en Kelce er meðal íþróttamanna sem birtust í kvikmyndinni Happy Gilmore 2. Taylor Swift er ein frægasta tónlistarkona heims og vakti nýlegt tónleikaferðalag hennar, Eras Tour, mikla athygli. Travis Kelce er atvinnumaður í bandarískum fótbolta og spilar hann í NFL-deildinni fyrir Kansas City Chiefs. Parið hóf samband sitt árið 2023 og bað Kelce hennar í ágúst 2025.
Bandaríkin Ástin og lífið Tónlist NFL Hollywood Brúðkaup Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira