Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júlí 2026 10:18 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lagði fram tillöguna. Vísir/Vilhelm Borgarráð samþykkti tillögu borgarstjóra um að afturkalla styttingu á opnunartíma frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva sem taka átti gildi í lok ágúst. Þrátt fyrir yfirlýsingu um að velta kostnaðinum ekki yfir á foreldra eru einnig lagðar til breytingar á gjaldskrá.
Borgarstjórn, sem var þá undir forystu meirihluta Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Pírata, Flokks fólksins og Sósíalistaflokksins, samþykkti á fundi sínum í apríl að stytta opnunartíma frístundaheimila um þrjátíu mínútur. Í greinargerð segir að breytingarnar hafi verið lagðar til í samræmi við breytingar á fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs. Breytingin átti að taka gildi þann 22. ágúst og stytta opnunartíma frístundaheimila frá 17 til 16:30. Á fundi borgarráðs í vikunni, en meirihluti borgarstjórnar samanstendur nú af Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Framsókn, var tillaga Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að falla frá breytingunni samþykkt. Í viðtali á Vísi þann 26. júní sagði Bjarni Fritzson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður skóla- og frístundaráðs, að til stæði að afturkalla breytinguna. Þá sagði hann að auðveld lausn í hagræðingu væri að velta kostnaði yfir á foreldra en það væri ekki stefna nýja meirihlutans. Hildur lagði fram áðurnefnda tillögu þremur dögum síðar. Auk hennar lagði hún fram tillögu um breytingu á gjaldskrá frístundaheimila. Eina breytingin sem lögð er til er að foreldrar sem hyggjast nýta tímann á milli 16:30 og 17 þurfi að greiða aukalega þúsund krónur á mánuði. Kosti tugi milljóna Fjárhagsleg áhrif opnunartímans voru metin og er gert ráð fyrir því að óbreyttur opnunartími kalli á sem nemur um tíu stöðugildum á ársgrundvelli. Það kosti 88,8 milljónir króna. Miðað er við að 473 nemendur nýti lengri viðveru en verður nýting þjónustunnar á þessum tíma metin í lok skólaárs. „Áhersla er lögð á að tryggja fyrirsjáanleika í þjónustu við börn og fjölskyldur, enda getur stytting opnunartíma haft áhrif á daglegt skipulag heimila og atvinnuþátttöku foreldra,“ segir í greinargerð tillögu Hildar. Meirihlutinn telur einnig að breytingin muni skila sér í auknum mönnunarvanda þar sem starfshlutfall starfsfólksins verði skert.
Frístund barna Borgarstjórn Reykjavík Börn og uppeldi Fjármál heimilisins Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira