Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júlí 2026 14:02 Stúkan í Laugardalslaug er ónýt. Vísir/Rakel Ósk Sigurðardóttir Svæði við stúku Laugardalslaugar hefur verið lokað vegna slæms ástands hennar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg segist skilja trega borgarbúa en nauðsynlegt er að rífa stúkuna.
Fyrr í vikunni tilkynnti Reykjavíkurborg að fimm heitum pottum, eimbaði og tveimur sérklefum við stúku Laugardalslaugar yrði lokað. Ástæðan er niðurstaða nýs áhættumats sem leiddi í ljós að ástand stúku Laugardalslaugar er afar slæmt. „Við höfum fengið formlegt ástandsmat á tveggja ára fresti og fengum þá núna ástandsmat frá verkfræðistofu. Þá kom í ljós að í raun og veru má segja að mannvirkið sé stöðugt að versna og þessi skýrsla sem kemur núna segir okkur bara að ástandið var orðið mjög bágborið vegna þessara alkalí- og tæringarskemmda,“ segir Helga Friðriksdóttir, skrifstofustjóri Íþróttaborgar á Menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Umræddu svæði var lokað um leið og niðurstaðan lá fyrir. Ekki sé hægt að gera við stúkuna en þegar sé hafin hugmyndavinna um endurnýjun mannvirkja í lauginni. „Þetta hefur verið á fjárfestingaráætlun en ekki fyrr en 2029. Við höfum þurft að forgangsraða og það hefur þurft allt að fara fyrst og fremst í grunnskóla og annað. En vissulega þurfum við að hraða því í raun og veru að rífa niður mannvirkið út af því að það stafar hætta af því,“ segir hún. Ekki sé hætta á heildarhruni stúkunnar en tekur Helga fram að öryggi gesta og starfsfólks sé alltaf í fyrirrúmi. Lokunin varir vonandi í mánuði en ekki ár „Þessar alkalískemmdir eru mjög erfiðar því þetta er svona eins og tæring innan frá og fara í burðarvirkið. Þetta er rosalega stór framkvæmd. Við skiljum alveg og höfum öll tilfinningar til þessa mannvirkis. Þetta var reist þarna 1968 og mörgum finnst þetta fallegt mannvirki og þetta er eins og einhver stólpi,“ segir Helga. Hins vegar þurfi borgarbúar að horfast í augu við það að stúkan sé ónýt og henni ekki viðbjargandi. Nú horfi þau fram á við og skoði hvað geti komið í staðinn. Fundað verður um málið í næstu viku en ekki er víst hversu lengi svæðið verður lokað. „Við erum auðvitað að vona að það verði frekar talið í mánuðum, út af röskuninni á svæðinu. En þetta skýrist vonandi á næstu dögum, allavega í mesta lagi á næstu vikum. Við þurfum líka að skipuleggja hana mjög vel, en eins og ég segi, ég vona að það verði talið í mánuðum, ekki árum,“ segir Helga. Fjallað var um ástand stúkunnar fyrir tveimur árum þegar borgarráð Reykjavíkur fékk afhenta síðustu skýrsluna.
Sundlaugar og baðlón Reykjavík Borgarstjórn Slysavarnir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira