Ancelotti svarar fyrir sig: Sir Alex Ferguson sá eini sem er hæfari en ég Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2026 18:31 Carlo Ancelotti með svipbrigði á hliðarlínunni í leiknum á móti Japan í 32 liða úrslitunum á HM. Getty/Ulrik Pedersen Carlo Ancelotti, þjálfari Brasilíu, svaraði efasemdarröddum á samfélagsmiðlum í Brasilíu og sagði að goðsögnin Sir Alex Ferguson, fyrrverandi stjóri Manchester United, væri eini þjálfarinn sem væri hæfari en hann.
Brasilía kom til baka á móti Japan eftir jöfnunarmark Casemiro í seinni hálfleik og sigurmark Gabriel Martinelli á fimmtu mínútu uppbótartíma tryggði Brasilíu 2-1 sigur. Liðið er því komið áfram í 16-liða úrslit þar sem það mætir Noregi á morgun. Eftir leikinn var Ancelotti, sem stýrir landsliði í fyrsta sinn á ferlinum, mikið hrósað fyrir að hafa komið liðinu í gegnum erfiðleikana. Gagnrýnendur á samfélagsmiðlum viðurkenndu að þessi reyndi þjálfari, sem hefur unnið Meistaradeildina fimm sinnum og er þar með methafi, hefði vit á fótbolta. 🚨🗣️ Carlo Ancelotti: "I've prepared for over 1,400 matches. That may not be enough to understand football, but it's certainly a good amount of experience.""Only one person has prepared more matches than me: Alex Ferguson, who has prepared for over 2,000. I take advice from… pic.twitter.com/G81Cz1VeNk— The Touchline | 𝐓 (@TouchlineX) July 4, 2026 Í viðtali við Folha de S. Paulo varði Ancelotti sig þegar hann var spurður út í þessi ummæli. „Á Ítalíu er sagt að allir karlmenn vilji vera þjálfarar og allar konur arkitektar. Ég veit ekki hvort ég skil fótbolta eða ekki, en enginn getur dæmt mig út frá því,“ sagði Ancelotti. „Það eina sem er víst er að ég hef undirbúið mig fyrir yfir 1.400 leiki. Það er kannski ekki nóg til að skilja fótbolta, en það er vissulega mikil reynsla,“ sagði Ancelotti. „Aðeins einn maður hefur undirbúið sig fyrir fleiri leiki en ég: Alex Ferguson, sem hefur undirbúið sig fyrir yfir 2.000 leiki. Ég tek við ráðum frá öllum, en sá eini sem gæti raunverulega verið rétti aðilinn til að gefa mér ráð er Alex Ferguson,“ sagði Ancelotti. „Ég er 100% viss um að ég er enginn snillingur, en á sama tíma er ég 100% viss um að ég er enginn bjáni,“ sagði Ancelotti. Sigurvegari leiksins á morgun mætir annaðhvort gestgjöfunum Mexíkó eða Englandi í fjórðungsúrslitum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira