Afríska innrásin á HM stöðvuð í fæðingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2026 07:01 Mohamed Salah og félagar í egypska landsliðinu unnu sinn leik í 32-liða úrslitum í vítakeppni og eru önnur tveggja Afríkuþjóða sem eru enn á lífi. Getty/Hector Vivas Sjö afrísk landslið duttu út í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Það standa því bara tvö eftir og afríska innrásin á HM er orðin hálfmáttlítil miðað við í hvað stefndi.
Mikið var skrifað og skrafað um frábæran árangur afrísku landsliðanna á HM í fótbolta en níu af tíu komust upp úr sínum riðli og fóru í útsláttarkeppnina í heimsmeistarakeppninni í ár. Liðin náðu framúrskarandi árangri í riðlakeppninni en hins vegar hefur ekki gengið jafn vel í 32-liða úrslitunum hingað til. Aðeins Marokkó og Egyptalandi tókst að komast áfram í sextán liða úrslitin. Marokkó, sem komst í undanúrslit á síðasta HM, vann Holland í vítaspyrnukeppni en Egyptar þurftu einnig vítaspyrnukeppni til að slá út Ástralíu. Engri Afríkuþjóð tókst að vinna leik í útsláttarkeppninni í venjulegum leiktíma eða framlengingu. Í sextán liða úrslitunum verða sjö Evrópuþjóðir, þrjár Norður- og Mið-Ameríkuþjóðir og fjórar Suður-Ameríkuþjóðir en aðeins tvær þjóðir frá Afríku. Framan af virtist einhver bölvun fylgja 86. mínútunni því hún reyndist Afríkuþjóðunum mikill örlagavaldur. Suður-Afríka, Fílabeinsströndin, Kongó og Senegal féllu öll úr á svekkjandi hátt á lokamínútum leikja sinna. Þrjú þeirra (Senegal, Kongó og Fílabeinsströndin) fengu á sig mark á nákvæmlega sömu mínútu leiksins, hinni að því er virðist bölvuðu 86. mínútu. Norðmaðurinn Erling Haaland sendi leikmenn Fílabeinsstrandarinnar í táradalinn, Englendingurinn Harry Kane sló Kongó út úr mótinu með sínu öðru marki á lokakaflanum og Belgía hélt sér á lífi með marki frá Romelu Lukaku á 86. mínútu, áður en seint jöfnunarmark (90. mínúta) og enn seinna sigurmark (120+5. mínúta) Belganna fylgdu í kjölfarið. Suður-Afríka fékk ekki á sig eina mark dagsins gegn Kanada á 86. mínútu, en liðið féll úr leik eftir mark í uppbótartíma (90+2. mínúta). Alsír tapaði síðan sannfærandi 2-0 á móti Svisslendingum og Gana átti ekki eitt skot á markið í 1-0 tapi á móti Kólumbíu en í báðum leikjum lenti afríska liðið snemma undir og ógnaði lítið sem ekkert eftir það. Marokkó komst í átta liða úrslitin í gær en Egyptar þurfa að vinna heimsmeistara Argentínu ætli Afríkuþjóðirnar að vera tvær sem koma svo langt í keppninni í ár. Afríka átti eina þjóð í átta liða úrslitunum fyrir fjórum árum (Marokkó) en enga í keppnunum 2014 og 2018. Árið 2010 var Gana eini fulltrúi Afríku í átta liða úrslitum.
HM 2026 í fótbolta Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira