Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Agnar Már Másson skrifar 5. júlí 2026 20:44 Lambið hafði komið sér í sjálfheldu og þegar björgunarsveitarmenn bar að garði ákváðu þeir að síga niður og sækja dýrið. Björgunarsveit Hafnarfjarðar Björgunarsveitarmönnum tókst vel að síga niður eftir lambi sem hafði komið sér í sjálfheldu í Krýsuvíkurbjargi. Formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar segir að lambið hafi verið kampakátt að komast aftur til kindanna á svæðinu.
Valdís Huld Jónsdóttir, formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, segir í samtali við Vísi að björgunaraðgerðin hafi gengið afskaplega vel í kvöld. Björgunarsveit Suðurness kom einnig að aðgerðinni. Fyrr í dag ræddi Vísir við Teit Þorkelsson leiðsögumann, sem brá verulega í brún í morgun þegar hann rakst á lambið, sem sat fast á brún í Krýsuvíkurbjargi og jarmaði ítrekað innan við mávagargið í klettinum. Björgunarsveitarmenn úr röðum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Og lambið.Björgunarsveit Hafnarfjarðar Í kjölfarið fóru björgunarsveitir á vettvang til að kanna hvort hægt væri að bjarga lambinu. Björgunarsveit Hafnarfjarðar tók upp þessi myndskeið af aðgerðinni. „Það gekk vonum framar,“ bætir Valdís við. Hún útskýrir að tveir björgunarmenn hafi sigið niður til lambsins þar sem það stóð ráðalaust í bjarginu. Þeir hafi náð því í net og þannig komið því aftur upp. „Þannig það er bara hérna á beit,“ segir Valdís og tekur fram að lambið virðist ekki slasað og að það plumi sig nú vel. Hinar kindurnar voru nokkuð langt frá, að sögn leiðsögumanns sem átti leið hjá.aðsend Lét á endanum bjarga sér Fyrst um sinn hafi lambið verið nokkuð skelkað við björgunarsveitarmennina. „Það var vissulega stíft í byrjun, en að lokum ákvað það að koma til okkar og láta bjarga sér,“ segir Valdís. Björgunarmenn héldu á lambinu alla leiðina svo það færi sér ekki að voða aftur, að sögn Valdísar. „Það var svo mjög spennt þegar við komumst aftur upp úr siginu. Það var ótt að komast til annarra kinda hér í kring.“ Björgunarsveitarmenn héldu á lambinu og færður það nær kindahjörðinni, svo það færi sér ekki að voða á ný.Björgunarsveit Hafnarfjarðar Frjáls!Björgunarsveit Hafnarfjarðar Gott að fá smá knús eftir björgunina.Björgunarsveit Hafnarfjarðar
Björgunarsveitir Dýr Hafnarfjörður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira