Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Sindri Sverrisson skrifar 6. júlí 2026 16:18 Gianni Infantino og Donald Trump hafa orðið góðir félagar á síðustu árum. Getty/Jia Haocheng Donald Trump Bandaríkjaforseti staðfesti við fjölmiðla í dag að hann hefði hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, og farið fram á að leikbann Folarin Balogun, framherja Bandaríkjanna, yrði tekið til endurskoðunar. „Ég fékk þá til að gera þetta,“ sagði Trump ánægður með niðurstöðu FIFA í málinu.
Balogun hefur verið frábær fyrir Bandaríkin á HM og skorað þrjú mörk en hann fékk rautt spjald gegn Bosníu í síðasta leik sem alla jafna hefði þýtt að hann yrði sjálfkrafa í leikbanni gegn Belgíu í 16-liða úrslitunum í nótt. Aganefnd FIFA ákvað hins vegar að bannið yrði skilorðsbundið til eins árs og gerði þannig Balogun kleift að spila áfram á HM eins og ekkert hefði ískorist. Strax í gær greindu virtir miðlar frá því að Trump hefði haft samband við Infantino til að fá banninu hnekkt og nú hefur Trump sjálfur hreykt sér af sínum þætti í málinu. Hann kvaðst þó aðeins hafa farið fram á að málið yrði tekið til endurskoðunar, í ljósi þess að Balogun hefði ekki verðskuldað rautt spjald. Trump on Balogun: "I saw the play, and I'm a person that loves sports ... that wasn't a foul. That wasn't even an infraction ... this referee, who is a little bit suspect if you check his past. He made a call that nobody could believe ... he's our best player, or one of our best… pic.twitter.com/YfIqb1JA4u— Aaron Rupar (@atrupar) July 6, 2026 „Þetta var ekki brot. Mér fannst þetta bara vera tveir frábærir íþróttamenn sem rákust saman og flæktust saman,“ sagði Trump eins og heyra má hér að ofan. Þá setti hann stórt spurningamerki við brasilíska dómarann Raphael Claus, sem gaf Balogun rauða spjaldið, og sagði hann vafasaman. „Ég held að þetta [leikbann] hefði skilið eftir svartan blett. Ég get ekki sagt mönnum til. Ég held að það hafi ekki verið þeir sem tóku ákvörðunina. Ég held að það hafi verið nefndin sem tók ákvörðunina. Og þetta var rétt ákvörðun,“ sagði Trump. Infantino hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann viðurkennir að hafa fengið símtal frá Trump en segir það ekkert óeðlilegt. Allar ákvarðanir um leikbönn séu hins vegar aganefndar sem sé óháð nefnd innan FIFA sem hann sé stundum sammála og stundum ósammála. FIFA President Gianni Infantino: “I have seen the public comments regarding the decision of the independent FIFA Disciplinary Committee related to the suspension of Folarin Balogun, and I would like to reiterate a fundamental principle of FIFA’s governance.“FIFA’s judicial… pic.twitter.com/FzeWuMQIXf— FIFA Media (@fifamedia) July 6, 2026
HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið Í Besta sætinu í dag sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. 6. júlí 2026 15:53 Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, segir ótækt að pólitískum brögðum sé beitt til að breyta úrskurðum eins og virðist hafa verið gert í tilfelli bandaríska framherjans Folarins Balogun. 6. júlí 2026 12:34 Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sent frá sér afdráttarlausa yfirlýsingu vegna fordæmalausu ákvörðunarinnar um að framherji Bandaríkjanna, Folarin Balogun, verði ekki í banni í kvöld vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðasta leik á HM. 6. júlí 2026 10:34 Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, líkti ákvörðun FIFA um að leyfa bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum gegn gestgjöfunum við að kalla 5. júlí „1. apríl“, eftir að eins leiks banni leikmannsins var aflétt. Balogun hafði fengið beint rautt spjald í 2-0 sigri þeirra á Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum. 5. júlí 2026 21:24 Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Bandaríski framherjinn Folarin Balogun má spila með gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en eins leiks banni hans vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hefur verið frestað að því er heimildarmenn sem þekkja til málsins hafa tjáð The Athletic. 5. júlí 2026 17:46 Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira
Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið Í Besta sætinu í dag sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. 6. júlí 2026 15:53
Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, segir ótækt að pólitískum brögðum sé beitt til að breyta úrskurðum eins og virðist hafa verið gert í tilfelli bandaríska framherjans Folarins Balogun. 6. júlí 2026 12:34
Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sent frá sér afdráttarlausa yfirlýsingu vegna fordæmalausu ákvörðunarinnar um að framherji Bandaríkjanna, Folarin Balogun, verði ekki í banni í kvöld vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í síðasta leik á HM. 6. júlí 2026 10:34
Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“ Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, líkti ákvörðun FIFA um að leyfa bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum gegn gestgjöfunum við að kalla 5. júlí „1. apríl“, eftir að eins leiks banni leikmannsins var aflétt. Balogun hafði fengið beint rautt spjald í 2-0 sigri þeirra á Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum. 5. júlí 2026 21:24
Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum Bandaríski framherjinn Folarin Balogun má spila með gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en eins leiks banni hans vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hefur verið frestað að því er heimildarmenn sem þekkja til málsins hafa tjáð The Athletic. 5. júlí 2026 17:46