Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Eiður Þór Árnason skrifar 7. júlí 2026 17:19 Herjólfur hefur siglt á einum mótor frá því í apríl. Vísir/vilhelm Viðgerðir á mótor Herjólfs IV Vestmannaeyjaferju eru á áætlun og gert ráð fyrir að mótorinn verði sendur til Íslands með skipi frá Hollandi þann 13. júlí. Mótorinn verði settur í ferjuna þegar hann berst til landsins og ferjan Baldur í kjölfarið snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið. Þetta segir í tilkynningu Vegagerðarinnar.
Viðgerð á Herjólfi hefur dregist og greint hefur verið frá ítrekuðum töfum. Í júní var greint frá því að verkið hefði tafist vegna seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi. „Upphaflega var gert ráð fyrir að viðgerðir myndu taka sjö vikur á verkstæðum ytra en nú erum við búin að vera síðan 11. apríl að sigla á annarri skrúfunni. Til að byrja með gekk viðgerð vel en síðan urðu tafir á afhendingu koparvírs sem mér skilst að skýrist af aðstæðum í heiminum,“ sagði Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, í samtali við fréttastofu í lok júní. Ferjan siglir bæði hægar og er aflminni á meðan annan mótorinn skortir. Þá var gert ráð fyrir að viðgerð myndi ljúka um miðjan júlí og í kjölfarið yrði Herjólfur tekinn úr áætlun og mótorinn settur upp. Sú vinna er sögð geta tekið allt að fjóra sólarhringa en skipið hefur siglt á einni vél af tveimur eftir að bilun kom upp í apríl. Ólafur sagði að það tæki einhverja daga að flytja mótorinn frá Hollandi til Íslands. Þá væri það talsverð aðgerð að setja mótorinn aftur í þar sem það þyrfti að rjúfa gat á gólfið á bíladekkinu og láta mótorinn síga þar niður. Óánægð með ráðstöfun Baldurs Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur mótmæltu þeirri ákvörðun innviðaráðherra að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja. Sveitarfélögin sögðust sýna því skilning að Baldur gegni hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða fer í slipp, líkt og samningar gera ráð fyrir. „Sú staða er hins vegar ekki uppi í þessu tilviki þar sem Baldur er færður úr siglingum á Breiðafirði til að mæta aukinni eftirspurn eftir farþega- og ökutækjaflutningum til Vestmannaeyja,“ sagði í yfirlýsingu sveitarstjórnarfólks í júní. Ákvörðunin hafi veruleg áhrif á samgöngur, vöruflutninga, atvinnulíf og þjónustu við samfélögin við Breiðafjörð og ekki síst Flatey. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gefið út að hann leiti leiða til að tryggja að rekstraraðilar Herjólfs eigi varamótor fyrir Herjólf á Íslandi. Fréttin er í vinnslu.
Herjólfur Samgöngumál Landeyjahöfn Vestmannaeyjar Rangárþing eystra Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira