Bonnie Tyler er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júlí 2026 09:23 Bonnie Tyler keppti fyrir hönd Breta í Eurovision árið 2013. Vísir/EPA Velska söngkonan Bonnie Tyler er látin, 75 ára að aldri. Tyler var þekkt fyrir sína hásu rödd, kom fyrst fram á sjónarsviðið á seinni hluta áttunda áratugarins og varð ein stærsta söngkona þess níunda með slögurum á borð við „Total Eclipse of the Heart“ og „Holding Out for a Hero“.
Fjölskylda Tyler greindi frá andláti hennar á heimasíðu tónlistarkonunnar. „Fjölskylda Bonniear og teymi eru gríðarsorgmædd að þurfa að tilkynna að Bonnie féll sviplega frá síðustu nótt á sjúkrahúsi í Portúgal vegna veikinda sem hún hafði verið að glíma við,“ sagði í tilkynningunni. Sjá einnig: Bonnie Tyler haldið sofandi eftir garnarof Tyler var flutt með hraði á spítala skammt frá Faro í Portúgal þar sem hún átti heimili. Hún var í kjölfarið sett í dá til að flýta batanum og var vakinn úr því dái um miðjan júní. Líðan hennar var þó enn slæm og henni áfram haldið á gjörgæslu. Úr velskri verkamannafjölskyldu Bonnie Tyler fæddist 8. júní 1951 inn í verkamannafjölskyldu í þorpinu Skewn skammt frá Swansea. Hún var yngst fimm systkina og var skírð Gaynor Hopkins. Hún leit alla tíð á sjálfa sig sem verkamannakonu og sagði við Guardian árið 2013 að þess vegna hefði hún aldrei hætt að vinna, Gaynor tók upp listamannsnafnið Bonnie Tyler. Tónlistarferill Tyle fór rólega af stað, hún söng ábreiður á börum meðan hún vann í matvöruverslun. Hún var uppgötvuð eitt kvöldið þegar hún söng lagið „Band of Gold“ eftir Fredu Payne og tók í kjölfarið upp demólög til að senda á útgáfufyrirtæki. Tveimur árum síðar var hún komin á mála hjá RCA og tók þá upp sviðsnafnið Bonnie Tyler. Fyrsta plata Tyler, The World Starts Tonight, kom út árið 1977 en vakti litla athygli. Sama ár kom út smáskífan „It's a Heartache“ sem rataði víða á topp vinsældarlista. Skömmu fyrir það hafði hún farið í aðgerð vegna smáhnúða á raddböndunum sínum sem varð til að rödd hennar varð hásari en áður og „fékk meira bit“ eins og hún orðaði það sjálf. Á níunda áratugnum fór Tyler út í rokktónlist og réði Jim Steinman, lagahöfund og framleiðanda, til að aðstoða sig. Með hjálp Steinman gaf Tyler út sína stærstu slagara, „Holding Out for a Hero“ árið 1980 og „Total Eclipse of the Heart“ árið 1983. Bæði lögin urðu gríðarvinsæl og hafa fest sig í sessi sem stöplar í poppkúltúr. Tyler hélt áfram að vinna alveg fram á áttræðisaldur, gaf út átján plötur og tugi smáskífa á sínum fimmtíu ára tónlistarferli. Þá keppti hún í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2013 með lagið „Believe in Me“. Tyler var Íslandsvinur og kom tvisvar fram á Íslandi, fyrst í Laugardalshöllinni árið 1986 og svo á tónlistarhátíðinni Secret Solstice árið 2018 þar sem hún tók alla helstu slagarana. Fréttin hefur verið uppfærð.
Andlát Wales Tónlist Hollywood Bretland Tengdar fréttir Bonnie Tyler kemur fram á Secret Solstice Söngkonan fræga Bonnie Tyler mun koma frá á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumar en hátíðin fer fram í Laugardalnum 21.-24. júní. 7. febrúar 2018 12:30 Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Sjá meira
Bonnie Tyler kemur fram á Secret Solstice Söngkonan fræga Bonnie Tyler mun koma frá á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í sumar en hátíðin fer fram í Laugardalnum 21.-24. júní. 7. febrúar 2018 12:30