„Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 9. júlí 2026 11:42 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríksiráðherra. vísir/ívar „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega. Ég spái því að þetta verði ekki síðasta fréttin sem Morgunblaðið flytur með þessum hætti.“
Athugasemd ritstjórnar: Þessi frétt hefur verið leiðrétt og má lesa hér. Upprunalega frétt má sjá að neðan. „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega. Ég spái því að þetta verði ekki síðasta fréttin sem Morgunblaðið flytur með þessum hætti.“ Þetta segir utanríkisráðherra sem segir orð forsætisráðherra Hollands um að Ísland verði að gangast undir sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins til að öðlast aðild ekki í samræmi við samtöl sem hún hefur átt við ónafngreinda Hollendinga og sína kollega í Evrópu. Hún gefur lítið fyrir umfjöllun Morgunblaðsins. Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að ríki sem gangi í Evrópusambandið verði að lúta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Þetta er byggt á svörum Rob Jetten forsætisráðherra Hollands við fyrirspurn hollensk þingmanns, Michiel Hoogeveen, í umræðum í neðri deild hollenska þingsins sem fóru fram 16. júní Jánkaði fyrirspurn Umræddur þingmaður vakti athygli á ummælum Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra ESB, um mögulega undanþágu Íslands frá stefnunni. Kadis hefur sagst vera opinn fyrir sérlausnum vegna Íslands. Þingmaðurinn spurði Jetten hvort stefna Hollands væri sú að ef ríki vildi aðild að ESB þyrfti það að undirgangast sjávarútvegsstefnuna, sem Jetten jánkaði. Guðlaugur Þór Þórðarson deildi myndskeiði af umræðunni á Facebook-síðu sinni. Í lok myndskeiðsins má heyra forsætisráðherra jánka. „Rétt, já,“ sagði forsætisráðherra Hollands. Michiel Hoogeveen, þingmaðurinn sem gekk á forsætisráðherra Hollands, er úr röðum JA21-flokksins og sat um tíma á Evrópuþinginu fyrir hönd Samtaka evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna (ECR) sem Miðflokkurinn er nú orðinn fullgildur meðlimur að. Þess ber að geta að það er ekki í valdi sjávarútvegsstjóra ESB að veita Íslandi einhliða undanþágu frá sjávarútvegsstefnunni heldur þarf hvert og eitt ríki sambandsins að samþykkja aðildarsamning. Engin undanþága, engin aðild Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segir að ekki komi til greina að veita afslátt af kröfu Íslands um undanþágu og segir orð forsætisráðherra Hollands ekki í samræmi við hennar samtöl við hann. „Þá eru markmið okkar Íslendinga varðandi fiskveiðistjórnunarmál alveg skýr, að við Íslendingar höfum yfirráð yfir okkar fiskveiðiauðlindum og fiskveiðistjórnun, alveg skýrt.“ Hún ítrekar að kosningarnar í ágúst snúist um hvort hefja eigi aðildarviðræður við ESB á nýjan leik og ef það yrði samþykkt færu samningaviðræður í hönd. „Þetta hefur komið fram hjá fiskveiðistjóra Evrópusambandsins og í rauninni líka við mína kollega hvort sem það er frá Þýskalandi, Spáni, Írlandi, Slóvakíu og ég get nefnt þá miklu, miklu fleiri. Ég held að við þurfum að taka allar þessar vangaveltur út af borðinu, ég legg áherslu á að það komi fram, hvort sem það eru vangaveltur blaðamanna Morgunblaðsins eða erlendra þingmanna, því það er hægt að semja.“ Sakar Morgunblaðið um að ganga erinda hagsmunaafla Hún setur spurningamerki við umfjöllun Morgunblaðsins. „Það kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu. Ég spyr mig af hverju þessi hagsmunaöfl vilja gera allt til þess að koma í veg fyrir að íslenska þjóðin fái að sjá samning. Morgunblaðið er yfirlýst á móti því að Íslendingar fái að sjá samning. Blaðamenn blaðsins hafa margítrekað sagt það og vilja að þjóðin viti það og þá skulum við bara meðtaka þau skilaboð, með þeim hætti sem þau koma.“ Hún segir að þetta hafi borið á góma á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í fyrradag. „Þar var ýmislegt rætt, meðal annars þetta, þá er alveg skýrt að það er alltaf verið að undirstrika að þetta séu samningaviðræður og fólk er pínu undrandi á því að það skuli vera hreyfing sem að sé í rauninni beinlínis að beita sér gegn því að Ísland fari í samningaviðræður. Og auðvitað spyr ég sjálfa mig, hvað óttast slík öfl? Þannig að ég vil bara að íslensk þjóð fái staðreyndir á borðið, sannleikann á borðið. En ekki vangaveltur frá sérhagsmunaöflum,“ segir Þorgerður og bætir við: „Þetta snýst fyrst og síðast um Ísland og hvað við getum gert fyrir Ísland, fyrir okkar kynslóð en ekki síst komandi kynslóðir.“ Uppfært 22. júlí: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var ranglega fullyrt að Þorgerður Katrín hefði rætt mögulega undanþágu Íslands frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins við Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands. Hið rétta er að hún sagðist hafa átt samtöl við ónafngreinda Hollendinga og aðra kollega sína í Evrópu. Þorgerður hefur skýrt frá því að hún hafi ekki rætt möguleikann á varanlegri undanþágu við Jetten. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Sjá nánar hér:
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjávarútvegur Utanríkismál Fjölmiðlar Evrópusambandið Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í vestur vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira