Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar 10. júlí 2026 09:02 Þegar ég var að alast upp á Grímstaðaholtinu og í Vesturbænum við bítl og hippatónlist tilheyrðu nánast öll róttæk ungmenni sem vildu breyta heiminum vinstri væng stjórnmálanna. Bítlakynslóðin gagnrýndi ríkjandi samfélagsskipan, auðvaldið og hernaðarhyggju og mótmælti kröftuglega gömlum, úrsérgengnum siðferðisviðhorfum. Hún barðist fyrir auknu frelsi, jafnrétti og alþjóðahyggju. Nú virðist staðan að einhverju leyti hafa snúist við. Á dögunum bar fyrir augu mín athyglisverða grein um uppgang hægrihreyfinga meðal ungs og vel menntaðs fólks í Evrópu. Af kynnum mínum af ungu fólki áttaði ég mig strax á því að Ísland var komið á sama vagninn. Nýjar hægrihreyfingar bjóða ungu fólki skýrt sjónarhorn: Þú tilheyrir þjóð. Þú átt sögu. Menning þín skiptir máli. Fjölskyldan skiptir máli. Landamæri skipta máli. Ég er væntanlega ekki einn um að bregðast fyrst við þessum viðsnúningi með því að gæla við þá hugmynd að unga fólkið sé illa upplýst, skorti reynslu og þekkingu. Það hafi orðið samfélagsmiðlum og tölvuleikjum að bráð, látið öfgamenn blekkja sig eða sé einfaldlega haldið fordómum og samsæriskenningum. Lesi sér ekki til gagns eða lesi yfir höfuð ekkert. Ekki einu sinni Laxness. En ég velti því líka fyrir mér hvort allt þetta dugi sem skýring á því hvers vegna vel menntað og hugsandi ungt fólk snýr baki við þeirri frjálslyndu alþjóðavæddu framtíðarsýn sem við töldum að næsta kynslóð myndi gera að sinni. Og … ég efast um það. Ég hef lengi talið mig til alþjóðasinna. Ég trúi á mikilvægi samstarfs þjóða, ekki síst fyrir smáríki eins og Ísland. Alþjóðastofnanir eru langt frá því að vera gallalausar, en heimurinn væri verri án þeirra. Ég er líka þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi að kanna til hlítar hvaða samning við gætum fengið um aðild að Evrópusambandinu. Það þýðir ekki að ég hafi fyrirfram ákveðið að Íslandi sé best borgið með því að ganga í sambandið. Ég vil einfaldlega vita hvað stendur okkur til boða áður en ég tek endanlega afstöðu. Mér hefur því þótt forvitnilegt að fylgjast með ungu, vel menntuðu fólki sem kemst að allt annarri niðurstöðu. Það hallast til hægri í stjórnmálum, leggur aukna áherslu á þjóðríkið og fullveldið og er harðákveðið í að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Aftur eru fyrstu viðbrögðin þessi: Þessi hópur ungs fólks hefur einfaldlega rangt fyrir sér. Það hefur vitaskuld rétt til að hafa rangt fyrir sér, en … er hugsanlegt að það sjái eitthvað sem ég sé ekki gegnum kámug eldriborgaragleraugun? Hvað varð um framtíðarsýnina? Áratugum saman virtist stefna sögunnar nokkuð augljós. Heimurinn yrði alþjóðlegri. Viðskipti og samstarf ríkja myndu aukast. Landamæri skiptu sífellt minna máli. Aukinni menntun fylgdu aukið umburðarlyndi og frjálslyndi. Evrópusamruninn var hluti af þessari framtíðarsýn. Unga fólkið sem nú færist til hægri í stjórnmálum ólst upp við þessa hugmyndafræði og horfir á þróun undangenginna áratuga gagnrýnum augum. Það hefur enga sérstaka ástæðu til að sýna tryggð við þá samfélagsþróun sem leitt hefur heiminn á þann stað sem hann er í dag. Líkt og við fulltrúar Bítlakynslóðarinnar á sínum tíma vill það betri heim, en á öðrum forsendum. Þetta birtist skýrt í umræðunni um Evrópusambandið. Ég horfi á málið og spyr: Hvað höfum við að tapa á því að kanna hvaða samning Ísland getur fengið? Við getum síðan metið niðurstöðuna og samþykkt eða hafnað henni. Unga kynslóðin á hægri vængnum spyr allt annarrar spurningar: Hvers vegna eigum við yfirleitt að ganga til viðræðna við samband sem við viljum ekki ganga í? Ég ólst upp við þá hugmynd að alþjóðasamvinna styrkti smáríki. Hluti ungu kynslóðarinnar virðist horfa á sama heim og sjá sífellt stærri yfirþjóðleg kerfi, fjarlæga og yfirþyrmandi stjórnsýslu og síminnkandi stjórn þjóðríkisins á eigin málum. Þar sem ég sé samstarf og tækifæri sjá þau afsal valds og ógn við sjálfstæði þjóðarinnar. Og ég spyr nánast í forundran: Hvers vegna upplifir hluti ungu kynslóðarinnar þjóðríkið sem skjól en alþjóðasamvinnu sem ógn? Ef til vill er kominn tími til að hlusta á rökin. Ekki endilega til að vera sammála. Ekki til að gefa eigin sannfæringu upp á bátinn, heldur til að reyna að skilja hvers vegna hluti af vel menntuðu ungu fólki horfir á heiminn sem við höfum skapað og kemst að allt annarri niðurstöðu um framtíðina en við reiknuðum með. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar