Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Sindri Sverrisson skrifar 11. júlí 2026 22:57 Ståle Solbakken reyndi að fá svör frá dómaranum Clement Turpin í hálfleik en þá var of seint að dæma markið af. Getty/Buda Mendes Norskir sparkspekingar spara ekki stóru orðin eftir að myndband virðist sýna að boltinn hafi farið í vír fyrir eina af sjónvarpsmyndavélunum á vellinum, í aðdraganda þess að Jude Bellingham jafnaði metin fyrir England gegn Noregi í kvöld.
Bellingham jafnaði meti í 1-1 í lok fyrri hálfleiks, í leik liðanna í 8-liða úrslitum HM. Skömmu áður hafði markvörður Noregs, Ørjan Nyland, að því er virðist spyrnt boltanum í vír sem strengdur er yfir völlinn fyrir sjónvarpsvél. „Áður en markið kom þá fór boltinn frá Ørjan í vírinn fyrir myndavélina yfir vellinum, þannig að boltinn fór styttra en hann hefði átt að gera. Dómararnir hefðu átt að sjá þetta,“ sagði aðstoðarþjálfari Noregs, Kent Bergersen, við TV 2 rétt fyrir seinni hálfleik. For the benefit of those who haven’t seen the review of the ball hitting the camera cable before England’s equaliser on Fox Sports… pic.twitter.com/TQks5POkLe— Melissa Reddy (@MelissaReddy_) July 11, 2026 „Það er alveg fáránlegt að svona nokkuð geti gerst. Dómararnir geta ekki hafa tekið eftir þessu. Þá hefði Noregur bara þurft að ryðjast inn á völlinn til þess að þeir tækju eftir því,“ segir landsliðsgoðsögnin Kjetil Rekdal við VG. Lars Tjærnås, fyrrverandi þjálfari, skrifar á X að það sé „algjört hneyksli“ að boltinn fari í vírinn og sé ekki látinn falla. Samkvæmt reglunum á dómarinn að láta boltann falla ef hann snertir utanaðkomandi hlut. The goal kick hit a camera wire in the buildup to Jude Bellingham's equalizing goal right before halftime 😯There was no VAR check on the play and Norway couldn't believe it 😳 pic.twitter.com/lmzrcyixqp— ESPN FC (@ESPNFC) July 11, 2026 Ekki kættust Norðmenn svo þegar mark var dæmt af miðverðinum Torbjørn Heggem, snemma í seinni hálfleik, þegar hann virtist hafa komið þeim í 2-1 eftir hornspyrnu. Markið var dæmt af eftir myndbandsskoðun þar sem að Erling Haaland þótti hafa brotið á Elliot Anderson áður en hornspyrnan var tekin, með því að ýta við honum. Englendingar unnu leikinn 2-1 eftir framlengdan leik þar sem Jude Bellingham skoraði annað mark sitt í leiknum á þriðju mínútu framlengingar.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira