FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Valur Páll Eiríksson skrifar 12. júlí 2026 10:47 Köngulóamyndavél (e. spider cam) hangir yfir vellinum á vírum. Boltinn virðist hafa farið í vírinn í aðdraganda marks Englands. Buda Mendes/Getty Images Það virðist flestum ljóst að boltinn breytti um stefnu af myndavélakapli í aðdraganda fyrra marks Englands við Noreg í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. FIFA segir gögnin sýna annað.
FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í gær með meðfylgjandi myndskeiði þar sem þykir ljóst að boltinn hafi ekki snert vírinn. Skynjarar tengdir örflögum í boltanum hafi ekki sýnt fram á snertingu. Þeir skynjarar komust í fréttirnar þegar jöfnunarmark Króata gegn Portúgal í 32-liða úrslitum var dæmt af. Þar var spurning um rangstöðu sem valt á því hvort leikmaður Króata snerti boltann. Öllum virtist ljóst að snertingin þar hafi verið góð sem engin en þá var niðurstaða eftir greiningu úr gögnum skynjarana að leikmaður Króata hafi lítillega snert boltann, sem virtist rétt strjúka hár hans. Út frá því hversu mikla stefnubreytingu mátti sjá á knettinum er hann virtist snerta myndavélavírinn í gær er því óvænt að skynjarar í boltanum segi ekki til um snertingu. Hafi boltinn hæft vírinn segja reglur leiksins til um að stöðva skuli leikinn og framkvæma dómarakast. Það var ekki gert í leik gærkvöldsins og upp úr atvikinu kom jöfnunarmark Englendinga. Take a look at this clip from BBC's 3D replay of the game and the goal kick just before England's goal. I don't know where the data comes for this, but this clearly shows a bump in the otherwise smooth trajectory of the ball right where the spidercam would be. #worldcup #engnor… pic.twitter.com/rCsbVQZeyf— Miika Arponen (@MiikaArponen) July 12, 2026 Greiningartól BBC í útsendingu gærkvöldsins sýnir klára breytingu á stefnu boltans en yfirlýsing FIFA eftir leik í gær er skýr. „Fyrir mark Englands gegn Noregi í mínútu 45+2 sýndi skynjarinn í tengda boltanum ekkert slag í „hjartslætti boltans“ þegar hann var í loftinu og því engin merki um að boltinn hefði snert loftvírann og breytt hreyfingu hans,“ segir í yfirlýsingu FIFA með meðfylgjandi myndskeiði. Before England’s goal in minute 45+2 against Norway, the sensor in the Connected Ball showed no peak in the 'heartbeat of the ball' when in the air, and therefore no evidence that the ball touched the overhead wire and changed the movement of the ball. pic.twitter.com/gYf9ukfveT— FIFA Media (@fifamedia) July 11, 2026 Norðmenn halda hins vegar svekktir heim á leið á meðan Englendingar fara áfram í undanúrslit mótsins og mæta Argentínu í Falklandseyjaslag. Frakkland og Spánn mætast í fyrri undanúrslitaleiknum á þriðjudag en Argentína og England mætast á miðvikudagskvöld.
HM 2026 í fótbolta Enski boltinn Norski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira