„Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. júlí 2026 19:57 Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri Lauf Cycle. vísir/ívar Íslenskt fyrirtæki fékk svokallaða Trump-tolla endurgreidda á dögunum eftir að hafa barist í bökkum undanfarna mánuði. Framkvæmdastjóri Lauf segir tollana nánast hafa gert fyrirtækið gjaldþrota og fagnar varnarsigri þó endugreiðslan bæti tjónið aðeins að hluta.
Eins og frægt er lagði Donald Trump Bandaríkjaforseti á svokallaða gagnkvæma tolla á innflutning frá öðrum ríkjum sem tóku gildi í ágúst. Þá var lagður fimmtán prósenta tollur á vörur frá Íslandi. Í febrúar á þessu ári dæmdi Hæstiréttur Bandaríkjanna tollana ólögmæta. Tollarnir sem höfðu þá staðið í nokkra mánuði voru því felldir úr gildi og ferli sett á laggirnar til að fá tolla sem fyrirtæki höfðu greitt á umræddu tímabili endurgreidda. Áætlað er að samtals hafi verið innheimtir 166 milljarðar dala í ólögmætum tollum. Fjöldamörg fyrirtæki um allan heim hafa fengið endurgreitt frá Bandaríkjunum en þar á meðal er íslenska fyrirtækið Lauf cycle. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá. Benedikt Skúlason, framkvæmdastjóri Lauf Cycle, segir þau hafa fengið rúmlega 80 milljónir íslenskra króna endurgreiddar frá bandarískum tollayfirvöldum eftir rafræna umsókn. „Okkur að óvörum rúlluðu endurgreiðslurnar inn á reikning og við fengum ekki einu sinni að vita af því. Það voru allt í einu bara komnar einhverjar millifærslur. Bara búið að græja þetta. Við fáum ekkert tjónið bætt nema að því leyti sem við borguðum tollana. Stærsta tjónið var það að við þurftum að setja allt í háaloft í okkar aðfangakeðjum og við áttum ekki lager til, ekki næstum því nóg. Við misstum fullt af sölu og reyndum að vinna með nýjum birgjum sem svo reyndust ekki virka og eyddum helling af pening í það.“ Samtök iðnaðarins staðfestu í dag í samtali við fréttastofu að fleiri íslensk fyrirtæki stæðu nú í því ferli að fá tollana endurgreidda og enn fleiri íhuga að fara sömu leið. Þar á meðal er Össur sem er í miðju ferli en það staðfesti forstjóri fyrirtækisins í samtali við fréttastofu. Nánast gerð gjaldþrota Lauf hafi farið hvað verst út úr tollunum af íslenskum fyrirtækjum enda ýmsir íhlutir hjóla þeirra gerðir í Kína og Tævan og þaðan fluttir til Bandaríkjanna. „Þegar hæst lét var þetta 180 prósenta tollur. Þetta er kallað tollastríð og þetta var bara það, stríð á milli Bandaríkjanna og Kína. Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur.“ Að hans mati hafi tollarnir í raun snúist upp í andhverfu sína. „Við erum að framleiða í Bandaríkjunum. Við framleiðum okkar hjól þar og setjum þau saman úr íhlutum sem við fáum héðan og þaðan í Bandaríkjunum. Þetta bitnaði í raun á okkur mun verr en á þeim sem setja saman erlendis. Við í rauninni að gera hið rétta samkvæmt bandarískum stjórnvöldum, að koma með framleiðslu til Bandaríkjanna. Við vorum í rauninni nánast gerð gjaldþrota.“
Skattar, tollar og gjöld Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira