Handbolti

Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi

Sindri Sverrisson skrifar
Ingvar Dagur Gunnarsson og félagar í U20-landsliðinu spila um 13.-16. sæti á EM.
Ingvar Dagur Gunnarsson og félagar í U20-landsliðinu spila um 13.-16. sæti á EM. IHF/Simion Sebastian Tataru

Íslenska U20-landsliðið í handbolta karla getur nú í besta falli náð 13. sæti á Evrópumótinu í Rúmeníu, eftir 31-27 tap gegn Noregi í dag.

Ungu strákarnir okkar fóru vel af stað á mótinu og unnu Austurríki og Lettland en töpuðu fyrir ríkjandi meisturum Spánar, í riðlakeppninni. Þeir lentu í afar krefjandi milliriðli og töpuðu með eins marks mun gegn Króatíu og tveggja marka mun gegn Danmörku, og enduðu neðstir í milliriðlinum.

Ísland fór því í leiki um 9.-16. sæti en tapaði í dag gegn Noregi og getur þar með best náð 13. sæti. Liðið spilar næst á morgun við Ísraelsmenn sem töpuðu fyrir Færeyingum í dag, og Færeyjar mæta Noregi í slag tveggja af liðunum sem enda fyrir ofan Ísland, í 9.-12. sæti.

Ísland var tveimur mörkum yfir í hálfleik í dag, 14-12, en Norðmenn voru fljótir að jafna metin í seinni hálfleiknum og þeir voru svo komnir í 24-19 þegar enn voru tæpar tuttugu mínútur eftir.

Munurinn varð mestur átta mörk en Ísland skoraði fjögur síðustu mörk leiksins og lagaði stöðuna fyrir leikslok.

Jens Bragi Bergþórsson og Ágúst Guðmundsson voru markahæstir Íslands með sex mörk hvor og þeir Daníel Montoro og Andri Erlingsson skoruðu þrjú mörk hvor. Alexander Ásgrímsson varði 11 af 41 skoti sem hann fékk á sig, eða 26,83%, en markvörður Noregs, Vetle Revheim Gleditsch, var með 40% markvörslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×