Sport

Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bergrós Björnsdóttir er búin að skrá sig inn og er tilbúin í slaginn. Hér er hún með móður sinni Berglindi Hafsteinsdóttur.
Bergrós Björnsdóttir er búin að skrá sig inn og er tilbúin í slaginn. Hér er hún með móður sinni Berglindi Hafsteinsdóttur. @bergrosbjornsdottir

Tuttugustu heimsleikarnir í CrossFit hefjast í dag og það verður nóg um að vera á fyrsta keppnisdeginum.

Ísland á aftur þátttakanda í keppni fullorðinna því hin nítján ára gamla Bergrós Björnsdóttir tryggði sig inn á sína fyrstu heimsleika.

Ísland hefur fjórum sinnum eignast heimsmeistara í CrossFit og fjögur hafa komist á verðlaunapall, þar af unnu Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttur tvo titla hvor.

Þar sem þetta eru afmælisheimsleikar byrjar keppnin á fyrstu greininni sem fór fram á heimsleikunum en svo bíða sex aðrar greinar keppenda í dag þannig að álagið verður mikið á fyrsta degi.

Hér fyrir neðan verður hægt að fylgjast með keppninni í dag en fyrsta grein hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×