Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. júlí 2026 12:42 Herjólfur á siglingu við Vestmannaeyjar. Vísir/Vilhelm Viðgerð á Herjólfi lýkur í dag og verður honum siglt heim í kvöld. Samgöngur til Vestmannaeyja virðast vera loks komnar í lag eftir hálft ár af ítrekuðum vandræðum.
Herjólfi var siglt til Þorlákshafnar aðfaranótt mánudags þar sem nýr mótor var settur í ferjuna. Í tilkynningu á Facebook-síðu Herjólfs segir að prufusigling hafi farið fram í gærkvöldi og gekk hún vel. „Við hjá Herjólfi viljum þakka áhöfn Baldurs fyrir ánægjulegt samstarf undanfarnar vikur. Í sumar hefur Baldur flutt rúmlega 28 þúsund farþega og rúmlega 7 þúsund farartæki, fyrir það erum við þakklát. Við óskum Baldri velfarnaðar í sínum siglingum,“ segir í tilkynningunni. Baldri var siglt um tíma á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar vegna bilunar í mótor Herjólfs. Sex mánuðir af vandræðum Vandræði með ferðir Herjólfs hófust í byrjun mars þegar bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesi þegar unnið var að dýpkun Landeyjarhafnar. Við tóku mánuðir þar sem sigla þurfti til Þorlákshafnar nema við kjöraðstæður. Í apríl bilaði síðan vélbúnaður Herjólfs og þurfti að sigla á takmörkuðu afli. Það lengdi ferðatímann og tók til að mynda ein ferð sex klukkustundir vegna bilunarinnar og veðurs. Mótorinn var sendur í viðgerð til útlanda um miðjan apríl. Á meðan bæði mótorinn var bilaður og siglt var til Þorlákshafnar komu upp minniháttar atvik, svo sem bilaði hlerinn þaðan sem bílar koma og opnaðist ekki. Þá kviknaði í gagnveri í Amsterdam með þeim afleiðingum að bókunarkerfi Herjólfs lá niðri. Það var loks í maí sem loks var hægt að sigla til Landeyjahafnar á ný en áfram var Herjólfur með eina skrúfu og sumaráætluninni því frestað. Baldri var þá siglt til Eyja og fóru Herjólfur og Baldur milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Viðgerðinni á mótornum seinkaði um þrjár vikur en það var loks á mánudag sem hægt var að hefja viðgerðina á Herjólfi. Svo virðist sem hrakfallasagu Herjólfs sé loks á enda.
Herjólfur Vestmannaeyjar Samgöngumál Landeyjahöfn Rangárþing eystra Ferjan Baldur Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira