TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2026 14:16 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sakar TikTok um að gera ekki nóg til að verja börn og ungmenni Getty/Jonathan Raa, NurPhoto Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sakað eigendur miðilsins TikTok um að brjóta gegn lögum ríkjasambandsins um stafræna þjónustu. Ásakanirnar snúa sérstaklega að því að börn séu berskjölduð gagnvart níðingum og einelti á TikTok en málið gæti endað með því að eigendur ByteDance þurfi að borga stærðarinnar sekt.
Umrædd lög kallast á ensku „The Digital Services Act“ og fjalla að miklu leyti um samfélagsmiðla og eftirlit og ritstjórn á þeim. Fyrsta tæknifyrirtækið sem var sektað á grunni umræddra laga var X (áður Twitter). Það var sektað um 120 milljónir evra í desember í fyrra. Sjá einnig: ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Ásakanirnar gegn TikTok fela í sér að fyrirtækið geri ekki nóg til að vernda börn á miðlinum, einkalíf þeirra og persónuupplýsingar. Þá geti börn gert síður sínar á TikTok opinberar, svo allir geti séð efni þeirra, sem megi ekki samkvæmt DSA. Framkvæmdastjórnin segir einnig að of auðvelt sé að finna börn á TikTok. CNBC News hefur eftir forsvarsmönnum TikTok að farið verði yfir niðurstöður framkvæmdastjórnarinnar og að framhaldið verði ákveðið í samráði við Evrópusambandið. Í tveimur fyrri málum hefur ByteDance orðið við kröfum framkvæmdastjórnarinnar og er svo eitt mál til viðbótar yfirstandandi. Google fékk himinháa sekt Í gær sektaði framkvæmdastjórnin Google um 890 milljónir evra, eða um tæplega 128 milljarða króna, á grunni annarra sambærilegra laga sem kallast „The Digital Markets Act“. Þau lög snúa að samkeppni á internetinu. Framkvæmdastjórnin sakar Google um að beita yfirburðastöðu sinni á sviði leitar á internetinu til að ota eigin tota. Það er að segja, til að kynna eigin vörur og þjónustu frekar en aðra sem gæti verið betri og ódýrari fyrir notendur. Það sé eitthvað sem DMA-lögin banni. Fyrirtækið er sakað um að beita sambærilegum aðferðum hvað varðar forrit í snjalltækjum sem keyra á Android-stýrikerfi Google. Greiði Google ekki sektina innan sextíu daga gæti hún hækkað verulega og gæti fyrirtækinu verið gert að greiða sektir sem hljóða upp á allt að fimm prósent af veltu þess. Sektuðu einnig AliExpress Á mánudaginn síðastliðinn sektaði framkvæmdastjórnin AliExpress um 550 milljónir evra, eða um 79 milljarða króna, fyrir að brjóta gegn DSA-lögunum. Sú sekt byggir á því að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi ekki varið notendur gegn sölu ólöglegra, hættulegra eða svikavara á netmarkaðstorgi þess. Áðurnefndir forsvarsmenn eru sagðir ekki hafa tryggt að þeir hefðu nægjanlega margt starfsfólk til að greina og stöðva sölu ólöglegs varnings. Þá hafi ekki verið gengið úr skugga um að slíkum varningi væri ekki otað að notendum gegnum auglýsingar.
Evrópusambandið Samfélagsmiðlar Google TikTok Mest lesið Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Atvinnulíf Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira