Íslenski boltinn

Dag­skráin í dag: Bikarúrslitaliðin í eld­línunni

Valur Páll Eiríksson skrifar
0O2A5103 3

Tveir leikir fara fram í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag og hægt er að sjá þá báða í Besta sætinu.

Liðin tvö sem tryggðu sér farseðil í úrslitaleikinn í Mjólkurbikar kvenna um helgina, Þróttur og Grindavík/Njarðvík, eiga bæði leiki í kvöld.

Þróttur tekur á móti Víkingi í Reykjavíkurslag í Laugardalnum. Sá leikur hefst klukkan 19:15 en útsending hefst klukkan 19:05 á Sýn Sport Ísland.

Grindavík/Njarðvík heimsækir þá Stjörnuna í Garðabæinn. Sá leikur hefst einnig klukkan 19:15 en útsending klukkan 19:05 á Sýn Sport Ísland 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×