„Ekki það sem við lögðum upp með“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 28. júlí 2026 21:57 Ingibjörg Lúcía fékk ekki tækifæri til að fagna marki í kvöld, frekar en aðrir á vellinum. Vísir/Hulda Margrét Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, var ekki fyllilega sátt eftir markalaust jafntefli gegn Grindavík/Njarðvík í Garðabæ í kvöld. „
Við fórum alls ekki inn í leikinn með það markmið að sækja eitt stig. Þetta var ekki það sem við lögðum upp með,“ sagði Ingibjörg Lúcía eftir leik. Stjarnan byrjaði leikinn ágætlega en náði ekki að fylgja því eftir að hennar mati. „Við byrjuðum mjög vel fyrstu mínúturnar en heilt yfir var fyrri hálfleikurinn kannski ekki nógu góður af okkar hálfu. Við vorum ekki alveg á okkar besta degi og náðum ekki að skapa jafn hættuleg færi og við erum vanar.“ Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og fáum opnum færum. Ingibjörg sagði það þó ekki hafa komið Stjörnukonum á óvart. „Við höfum spilað gegn þeim oft á þessu ári og vitum nákvæmlega hvernig þær spila. Þetta er svolítið þeirra leikur og við þurfum bara að taka þátt í því.“ Hún var ánægð með vinnuframlag liðsins en fannst vanta meiri gæði á síðasta þriðjungi vallarins. „Það var mikil barátta í leiknum og mér fannst við vinna vel. Við náðum hins vegar ekki að koma okkur í nógu hættulegar stöður til að geta gert út um leikinn.“ Nú tekur við stutt hlé hjá Stjörnunni áður en liðið mætir Þrótti á heimavelli eftir verslunarmannahelgi. „Við fáum helgarfrí og byrjum síðan strax á mánudaginn að einbeita okkur að næsta leik.“
Stjarnan UMF Grindavík UMF Njarðvík Besta deild kvenna Mest lesið Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Þurfa ekki að greiða Eriksen laun Fótbolti „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Íslenski boltinn Heimsmeistarinn óvænt úr leik í fyrstu umferð Sport Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Fleiri fréttir Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Selfoss og Jón Daði semja um starfslok Sara Björk skoraði tvö mörk og loksins sigur Fastir í þriðja gír og bitlausir Sjá meira