Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar 29. júlí 2026 15:01 Í umræðunni um afbrot og fíkn er oft rætt um afleiðingar en síður um orsakir. Þegar síbrotamaður er handtekinn eða stór fíkniefnasending gerð upptæk er reynt að telja okkur í trú um að samfélagið hafi unnið sigur. Slíkar aðgerðir skipta vissulega máli og lögregla þarf að hafa burði til að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi. En ef markmiðið er að draga varanlega úr afbrotum og fíkn gera refsiaðgerðir lítið sem ekkert gagn. Á undanförnum árum hafa fjölmargar vísbendingar komið fram sem benda til þess að líðan barna og ungmenna fari versnandi. Í tölum frá Barnaverndarstofu sl. ár hefur komið fram að veruleg aukning sé í áhættuhegðun barna. Íslenska módelið svokallaða, sem við höfum farið með um heiminn og hreykt okkur af, virðist vera fokið út í veður og vind. Þannig hefur áfengisneysla barna aukist mikið og ofbeldismálum fjölgað umtalsvert. Á sama tíma hefur tilkynningum til barnaverndar og lögreglu vegna barna fjölgað verulega. Þrátt fyrir alvarleika stöðunnar hefur nær engin alvöru umræða átt sér stað í samfélaginu um hana. Við höldum áfram að rífast um Sundabraut og Fjarðaheiðargöng. Samhliða þessari þróun hefur greiningum á geðrænum vanda og notkun geðlyfja meðal barna og ungmenna aukist mikið. Í sumum lyfjaflokkum hefur notkunin margfaldast á tiltölulega skömmum tíma. Það eitt og sér segir ekki alla söguna en er vísbending um að sífellt fleiri börn glími við vanlíðan sem kallar á meiri stuðning. Þegar fleiri börn eiga í erfiðleikum með líðan, samskipti og þátttöku í samfélaginu eykst einnig hættan á brottfalli úr skóla, félagslegri einangrun, fíknivanda og afbrotum síðar á lífsleiðinni. Þess vegna er það í rauninni gjaldþrota svar að loka síbrotamenn inni eða líta á glæpavæðingu fíkniefnanotkunar sem sérstakt forgangsmál. Fangelsun getur dregið tímabundið úr innbrotum og öðrum brotum á meðan viðkomandi er sviptur frelsi en hún leysir ekki þann vanda sem leiddi einstaklinginn út í afbrotin. Á sama hátt breytir það litlu til lengri tíma þegar 50 kíló af kókaíni eru gerð upptæk. Það dregur úr framboði tímabundið, verðið hækkar á götunni en markaðurinn aðlagast fljótt. Fyrir þá sem eru verst haldnir getur takmarkað framboð og hækkandi verð jafnvel leitt til meiri örvæntingar og enn alvarlegri brota til fjármagna neysluna. Samfélag sem leggur megináherslu á efnisleg gæði en vanrækir tengsl, samkennd og þátttöku verður smám saman kaldara og firrtara. Jaðarsetning fátæks fólks leiðir ekkert gott af sér. Borgarafundur í ráðhúsi Reykjavíkur þar sem rætt er um nágrannavörslu og harðari refsingar leysir heldur engan vanda. Við þurfum ekki annað en að líta til Bandaríkjanna til að sjá hvað refsistefnan hefur beðið algjört skipbrot. Raunverulegar lausnir felast í því að breyta forgangsröðuninni algjörlega. Horfum til orsakaþátta og færum velferð barna úr 23. sæti það fyrsta. Hættum að pissa í skóinn til að forða okkur frá kuldanum í frostinu. Klæðum okkur heldur í ullarsokka og almennilega skó. Við þurfum að styðja börn, ungmenni, verðandi foreldra og viðkvæma hópa áður en spírall geðræns vanda sem aftur leiðir til fíknar eða afbrota tekur við. Fjárfesting í snemmtækum stuðningi, öflugri geðheilbrigðisþjónustu, skólastarfi, tómstundum og sterkum samfélögum skilar sér margfalt til baka – bæði í bættum lífsgæðum og færri afbrotum. Leggjum úrelda hugmyndafræði glæpavæðingar á haugana og förum að sinna fólki og byggjum samfélag þar sem einstaklingshyggja víkur fyrir samkennd. Höfundur er framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Grímur Atlason Geðheilbrigði Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar