Innlent

Gæslu­varð­hald sam­þykkt yfir Ming Ting

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Ming Ting var viðstödd dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þar sem hún var sakfelld fyrir morð á dóttur sinni.
Ming Ting var viðstödd dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær þar sem hún var sakfelld fyrir morð á dóttur sinni. Vísir/Lýður

„Það var fallist á gæsluvarðhaldskröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi,“ staðfestir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, sakbornings í Edition-málinu svokallaða. Mancel var í gær dæmd til tólf ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir samverknað í morði á dóttur sinni.

Mancel hafði fram til þessa sætt farbanni en sætir nú gæsluvarðhaldi að kröfu héraðssaksóknara.

„Ég er að kæra þá niðurstöðu til Landsréttar,“ staðfestir Ómar Örn sem á von á niðurstöðu öðru hvoru megin við helgina.

Þegar hefur komið fram að Mancel muni áfrýja sakfellingunni til Landsréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×