Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Eiður Þór Árnason skrifar 1. ágúst 2026 12:30 Þórir Sæmundsson starfaði áður sem leikari og segir nútímamanninn þurfa að sýna náttúrunni meiri skilning. Skjáskot/RÚV Leiðsögumanni blöskrar að fólk stundi það að gefa villtum refum að éta við ferðamannastaði án þess að hugsa út í hvaða áhrif það kunni að hafa á dýrin. Í myndskeiði sem Þórir Sæmundsson deilir á samfélagsmiðlum sést refur vappa um bílastæði við Sólheimajökul. Líffræðingur segir óeðlilegt að refurinn hangi á bílastæðinu og ekki eigi að fóðra villt dýr. „
Þetta er villtur heimskautarefur sem er örugglega að hósta af því að einhver gaf honum snakk með sýrðum rjóma og laukbragði eða einhvern fjandann,“ segir í myndskeiðinu sem Þórir leiðsögumaður náði af refnum. „Þetta villta dýr sem hefur takmarkaðan aðgang að fæðu hefur fattað að hann getur fengið fríar máltíðir með því að hanga í kringum ferðamannastaði og vera krúttlegur.“ Hann hafi til að mynda séð fólk gefa refum hálfétna samloku, vöfflu og burrito-vefju. „Það er greinilegt að margir nútímamenn hafa nær engan skilning á því hvernig náttúran virkar og hvernig við eigum öll að reyna að draga úr áhrifum okkar á hana,“ segir í myndskeiðinu. Þórir staðfestir í samtali við fréttastofu að hann hafi ítrekað séð fólk fóðra refi við Sólheimajökul en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Bílar skaðlegri en matargjafir Leiðsögumaðurinn Davíð Geir Jónasson starfar við Mýrdalsjökul og segist bæði hafa séð erlenda ferðamenn og Íslendinga gefa refum. Hann horfi þó á þetta mildari augum og hafi jafnvel gefið þeim sjálfur. Davíð Geir Jónasson leiðsögumaður hjá Vík Expeditions.Vík Expeditions „Ég held að lífsbaráttan fyrir refina sé það hörð að það að hafa áhyggjur af mataræðinu er ekki á pýramídanum. Það er mikið frekar að ég sé að þeir séu að svelta frekar en að þeir séu að drepast úr einhverjum lífsstílssjúkdómum.“ „Það getur alveg verið að þeir borði eitthvað sem fer illa í þá eða jafnvel drepur þá. En ég held bara að úti í náttúrunni þá er margt annað sem getur drepið þá. Ég sé fleiri refi verða fyrir bílum heldur en að deyja úr sykursýki eða einhverju ofnæmi,“ bætir Davíð við. „Það eru nokkrir refir sem hafa orðið hændir að fólki, mest í Þórsmörk og síðan hefur þetta gerst við Kötlujökul og síðan aðeins byrjað að gerast við Sólheimajökul. Þessi refur er yfirleitt bara að koma og fara.“ Davíð segist mest hafa séð refi í Þórsmörk og að skálaverðir í Langadal og Húsadal hafi jafnvel verið með refahvolpa. „Þeir fundu greni þar sem búið var að skjóta móðurina og þeir tóku hvolpana að sér og ólu þá upp.“ Eðlilegt að þeir kúgist en fólk eigi ekki að fóðra þá Sunna Björk Ragnarsdóttir, sviðsstjóri dýrafræði og ferskvatns hjá Náttúrufræðistofnun, segir meginregluna þá að ekki eigi ekki að fóðra villt dýr. „Bæði er sennilegt að þú sért ekki að gefa þeim þá fæðu sem þau væru almennt þróuð til þess að borða og hins vegar ertu líka að ræna þau þessari getu sinni til þess að lifa af. Því það er ósennilegt að þau verði þá fóðruð allt árið um kring. Þetta eru almennt kannski ferðamenn sem eru að stoppa þarna dagpart sem eru að gefa dýrunum. Á meðan eru dýrin þá að tapa sinni náttúrulegu getu til að afla sér fæðu.“ Sunna Björk Ragnarsdóttir, sviðsstjóri dýrafræði og ferskvatns hjá Náttúrufræðistofnun.Náttúrufræðistofnun Eðlilega sæki dýrin í matinn þar sem þetta er auðveld fæða og mun erfiðara að afla hennar í náttúrunni. Þau eigi þá á hættu að þróa með sér varasamt atferli. „Það er mjög eðlilegt fyrir dýrin að þau síðan fari að komast upp á lagið með þetta.“ Sunna hefur séð áðurnefnt myndskeið og segir það ekki eðlilegt að refur sjáist vappa um á bílastæði. Á myndskeiðinu virðist refurinn vera að kúgast en hún segir ekki bara hægt að tengja það við athæfi manna. „Það er ekkert óeðlilegt við það í dýraríkinu. Dýr éta náttúrulega mjög fjölbreytta fæðu oft og æla síðan upp því sem þau geta ekki melt.“ Það að refurinn sé á bílastæðinu geti bent til þess að hann sé orðinn vanur því að fá fæðu á svæðinu. „Almennt eru þetta dýr sem kjósa ekki návist við manninn.“ Fólk þurfi að huga að ruslinu Davíð leiðsögumaður bendir á að refirnir séu einungis að reyna að komast af. „Ég held að þetta sé alveg meinlaust fyrir þá. Ég hef alveg gefið refum að borða þegar það er hart í ári fyrir þá, sérstaklega á veturna.“ Hann geri því ekki athugasemdir við það þegar fólk fóðrar refina. „Það er ekkert að verða einhver sprenging í refastofninum út af þessu eða neitt þannig sem ég get séð.“ Þess í stað beinir Davíð því frekar til ferðamanna að passa betur upp á umgengni sína á viðkvæmum svæðum. „Að vera ekki að misbjóða náttúrunni og hirða upp allt rusl eftir sig.“
Ferðaþjónusta Dýr Dýraheilbrigði Mýrdalshreppur Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira