Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Jakob Bjarnar skrifar 3. ágúst 2026 20:00 James Fleatcher er orðinn slituppgefinn á því að standa einn vaktina á Borgarhjólum. Hann hefur nú sett fyrirtækið á sölu en áhuginn virðist ekki mikill. vísir/Stefán Jón Ingvarsson James Fleatcher er síðasti útvörður reiðhjólaviðgerða í miðborginni. Hann rekur Borgarhjól – reiðhjólaviðgerðir við Hverfisgötuna í Reykjavík en hann er við það að gefast upp.
James segir fyrirtækið á sölu, hann hyggst selja húsið og þá sé þessu lokið með hjólaviðgerðirnar í miðborg Reykjavíkur. „Já, ætli það ekki. Ég hef staðið vaktina nú í fimmtán ár. Fyrst vann ég 54 tíma í viku, svo 50. Og lítil frí. Þetta er mikil binding og ég held ég verði að fara að kalla þetta gott,“ segir James í samtali við Vísi. Erfitt að vera einyrki James segir erfitt að standa í svona rekstri einn. Fyrirtækið hafi starfað frá 1983 en hann hafi eignast reksturinn 2009. „Þetta er þrældómur. Það er bara svoleiðis. Mér finnst gaman að vinna en mín vakt er eiginlega búinn. Og það er enginn sem vill taka við, enginn sem hefur áhuga á að vinna 50 tíma í viku.“ James segir að hann sé eins og síðasti móhíkaninn, hann sé sá síðasti með slíka þjónustu í miðborginni.vísir/stefán jón ingvarsson James er Breti og hann segist upphaflega hafa komið til Íslands vegna þess að hann kynntist íslenskri konu. Gömul saga og ný. Hann segist vera hálfgerð risaeðla. Hann hefur verið giftur sömu konunni nú í hartnær 40 ár, hann á þrjú börn og fimm barnabörn. „Einkareksturinn er þungbær þegar maður þarf að vera potturinn og pannan í öllu sjálfur. Og það er ekkert að skána. Ég er á besta stað í bænum en borgaryfirvöld eru með skrítnar hugmyndir.“ Borgaryfirvöld hafi skrítnar hugmyndir Þó uppgangur sé í hjólamennskunni, sérstaklega eftir að rafmagnshjólin komu til sögunnar eru borgaryfirvöld ekki að hjálpa upp á sakirnar með því að byggja hjólastíga en fækka bílastæðum. „Þá kemst gamla fólkið ekki að með hjólin sín. Ég verð hér þangað til ég er búinn að selja húsið en það er svo sem ekki mikið að gerast í fasteignabransanum heldur. Ég verð líklega síðasti þjónustuaðilinn fer úr bænum, ég get ekki staðið í þessu lengur.“ Upphaflega kom James til Íslands vegna þess að hann hafði kynnst íslenskri konu, það er gömul saga og ný.vísir/stefán jón ingvarsson Vísir hefur heyrt að hjólafólk í miðborginni hafi þungar áhyggjur af því að James hyggist nú loka Borgarhjólum. „Já, ég veit það. Ég hef verið að humma þetta fram af mér. Ég á viðskiptavini sem ég hef þekkt hátt í þrjátíu ár. Maður sér svo börnin þeirra og jafnvel barnabörnin. Maður þekkir þetta fólk. Þó maður vilji sjá viðskiptavini sem minnst, því þá er ekkert að. Ef þeir eru að koma trekk í trekk er eitthvað vesen. En, já, mér finnst þetta leiðinlegt fyrir hönd minna viðskiptavina.“ Vill ekki hljóma of bölsýnn James er 58 ára gamall og segir að hann sé nú að horfa í kringum sig eftir einhverju öðru starfi. Einhverju sem þýðir minni vinnu, að hann þurfi ekki að hafa áhyggjur af rekstrinum og geti bara tekið við launaseðlinum sínum. „Þetta verður eitthvað erfitt en hvað get ég sagt? Mér finnst þetta ekkert skemmtilegt. Ég setti fyrirtækið á markaðinn í vetur, en það voru engin viðbrögð. Ég hef haft samband við stærri aðila á markaðinum, Örninn, Tri og fleiri, sem gætu kannski verið með útibú hér, en engin viðbrögð. Það hefur enginn áhuga. Ég hugsa að það sé bindingin sem fæli fólk frá.“ Það er í mörg horn að líta þegar reiðhjólin eru annars vegar, kannski aðeins of mörg horn.vísir/stefán jón ingvarsson James vonast til þess að hann ljómi ekki of bölsýnn því þannig vilji hann ekki vera. Hann segir reksturinn vissulega hafa veitt sér margar ánægjustundirnar í gegnum tíðina og hann hafi kynnst fjölda fólks sem hann kann vel að meta en einhvern tíma er komið gott. „Mér finnst gaman að vinna með höndunum og ef einhver kæmi sem væri til í að taka yfir reksturinn þá væri ég alveg til í að vera áfram með þeim hinum sama eitthvað áfram. Ég hef reynsluna. En það er erfitt að standa alltaf einn í þessu.“
Hjólreiðar Verslun Neytendur Reykjavík Samgöngumál Skipulagsmál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira