Hjólreiðar

Fréttamynd

Þetta hjólar sig ekki sjálft

Um þessar mundir er margra ára grasrótarstarfi Reiðhjólabænda að ljúka. Félagið sem hóf starfsemi sína fyrir um 20 árum sem óformlegur hópur vina í raunheimum, óx og dafnaði með hjálp Facebookhóps og varð svo árið 2020 að skráðu félagi með kennitölu og var nýlega komið með rúmlega 200 skráða félagsmenn og konur.

Skoðun
Fréttamynd

Tryggðu þér nýtt raf­hjól fyrir 2027 á hag­stæðari kjörum

Rafhjól njóta sífellt meiri vinsælda enda sameina þau hreyfingu, útiveru, sparnað og þægilegan ferðamáta. Hvort sem ætlunin er að hjóla í vinnuna, skjótast í búðina, fara í fjallaferðir eða skutla börnunum í leikskólann er hægt að finna rafhjól við hæfi. Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum

Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið og vilja draga umræður um bílastæði og samgöngumál upp úr skotgröfunum. 

Innlent
Fréttamynd

Bíla­stæði eða bekkir og blóma­pottar?

Meirihlutinn í borgarstjórn hefur tilkynnt að fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur hafi verið eða verði tekin aftur í notkun á næstu dögum. Ýmist fá bekkir, blómapottar eða aðrir hlutir því að fjúka úr stæðunum. 

Innlent
Fréttamynd

Draumur reiðhjóla­við­gerðar­mannsins rættist

Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri Örtækni, hefur fest kaup á reiðhjólaverkstæðinu Borgarhjól sem var við Hverfisgötu. James Fleatcher, fyrrverandi eigandi, fylgdi með í kaupunum. Reksturinn er kominn í Hátún.

Innlent
Fréttamynd

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 

Innlent
Fréttamynd

Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum

Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á hjólreiðamann í Kópa­vogi

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í dag þar sem ekið var á hjólamann í hverfi 200 í Kópavogi. Sá hlaut minni háttar áverka en var sendur á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu um störf dagsins.

Innlent
Fréttamynd

Flúði grjót­kast í heima­landinu og vann silfur

Afganska hjólreiðakonan Fariba Hashimi vann silfur í hjólreiðum á Asíuleikunum. Í heimalandi hennar hefur hún þurft að þykjast vera karlmaður á meðan hún æfði sig þar sem réttindi fyrir kvenfólk eru skert.

Sport
Fréttamynd

Tafir við gönguljós á Hring­braut ekki vegna bilunar

Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavík segir tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar. Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa síðustu vikur innleitt nýtt ljósastýringakerfi, rauntímastýringu umferðarljósa, á Hringbraut. 

Innlent
Fréttamynd

Eitt allra krúttlegasta mót ársins

Hjólamót Hjólaskólans, hjólreiðafélagsins Tinds og Krónunnar fór fram í Öskjuhlíð á dögunum. Mótið, sem sumir myndu líklega segja að væri krúttlegasta hjólamót landsins, var þá haldið í níunda sinn og mættu um fjögur hundruð börn, þau yngstu tveggja ára en þau elstu tólf, til leiks.

Lífið
Fréttamynd

Enn engin skýring á dauða­slysi hjól­reiða­kappans

Engin opinber skýring hefur komið fram á því hvernig óbreyttur borgari á bíl gat verið á keppnisleiðinni þegar hinn nítján ára velski hjólreiðamaður Finlay Tarling lést í portúgalska hjólreiðakappakstrinum, Volta a Portugal, á föstudag.

Sport
Fréttamynd

Skoða hvort kepp­endur séu að stækka brjóstin með púðum

Lyfjamisnotkun hefur lengi verið vandamál í hjólreiðum en nú virðist nýr reglubrjótur vera að ryðja sér til rúms. Brjóstapúðar eru bannaðir og reglunum verður sérstaklega fylgt eftir í kjölfar kvartana í kvennakeppni Frakklandshjólreiðanna.

Sport
Fréttamynd

Í­trekað hjólað á móti um­ferð

Fólk á reðihjólum og rafhlaupahjólum hjólar ítrekað á móti umferð við Hverfisgötu í Reykjavík, en ekki virðast allir átta sig á því þar sé einstefna sitt hvoru megin við götuna. Formaður Landsambands hjólreiðamanna segir að bæta þurfi vegmerkingar við götuna. Einstefnuhjólastígum á að fara fjölgandi í borginni á næstu árum, að sögn Reykjavíkurborgar.

Innlent
Fréttamynd

Vakinn klukkan tvö um nótt til að fara í lyfja­próf

Danski hjólreiðakappinn Jonas Vingegaard endaði fimmtándu dagleið Frakklandshjólreiðanna í sjúkrabíl eftir að hafa dottið illa. Í framhaldinu kom fram í dagsljósið að Vingegaard hafði verið vakinn klukkan tvö um nóttina til að fara í lyfjapróf.

Sport
Fréttamynd

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“

Ekki eru allir á sama máli um hvort hjóla megi yfir á rauðu ljósi. Í umferðarlögum kveður þó skýrt á um að ökumönnum sé „óheimilt að aka gegn rauðu umferðarljósi. Við rautt ljós skal ökutæki stöðvað áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, umferðarljósastólpa.“ 

Innlent
Fréttamynd

Yngstu fara flestar ferðir

Nær helmingur landsmanna fer tvær til þrjár ferðir í umferðinni á dag. Ferðatíðnin minnkar almennt með hækkandi aldri en þeir yngstu fara að meðaltali 4,6 ferðir í umferðinni á dag.

Innlent
Fréttamynd

Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“

Einar Dagur Brynjarsson, sautján ára strákur sem var ljúka fyrsta ári í  Verzlunarskólanum, hjólaði af stað fyrir tíu dögum í hringferð til styrktar Hringnum. Einar Dagur stefnir á að ljúka hringferðinni í dag við Barnaspítalann. Hægt verður að fylgja honum síðustu kílómetrana frá Litlu Kaffistofunni en þar ætlar hann að vera um klukkan 15 í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Þeir gáfu mér þessi dýr­mætu augna­blik til að sveigja úr leið“

Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn.

Innlent