Greinir á við kjósendur sína Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. ágúst 2026 14:21 Jón Ferdínand hefur ekki áhyggjur af miklum stuðningi kjósenda flokksins við áframhald aðildarviðræðna, enda snúist hugmyndafræði sósíalista um meira en ESB. Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokks Íslands, segir stjórn flokksins taka því með miklu jafnaðargeði að ný skoðanakönnun Maskínu sýni að tæp 80 prósent stuðningsmanna Sósíalistaflokksins vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Sósíalistaflokkurinn hefur lýst yfir andstöðu við mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og segir það meðal annars „andsósíalískt“. „ESB er efnahagsbandalag og ríkjasamband sem byggir í meginatriðum og grunnskipulagi á kapítalískri efnahagsstefnu, utanríkisstefnu sem þjónar heimsvaldastefnu, hernaðarhyggju og síónisma, lýðræðislegri fjarlægð borgara frá ákvarðanatöku og veikingu á sjálfstæðri verkalýðsbaráttu,“ segir í ályktun flokksins. Jón segir niðurstöðurnar sem birtar voru í gær, þar sem meðal annars kemur fram að 79,2 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Sósíalistaflokkinn ef gengið væri til kosninga í dag hyggjast segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi, ekki koma á óvart. Hann bendir á að í könnun Maskínu frá því fyrr í sumar hafi rúm 70 prósent stuðningsmanna flokksins sagst myndu segja já. Jón segir formlega stefnu Sósíalistaflokksins hafa verið myndaða í gegnum fræðslu innan flokksins og rökræðum um stefnuna. „Hún var svo samþykkt með yfir 90 prósent greiddra atkvæða á aðalfundi flokksins,“ segir hann. „Og það er í raun eina leið okkar til stefnumótunar að hlusta á grasrótina og þar var bara mjög afdráttarlaus skoðun á málinu,“ bætir hann við. Jón segir stefnu flokksins í Evrópumálunum byggja á hugmyndafræðilegum grunni. Hugmyndafræðin sé afar ígrunduð og þá liggi einnig ákveðin lífsýn að baki. Þrátt fyrir að Evrópusambandsmálið sé stórt, sé það alls ekki þannig að það ráði úrslitum hjá öllum. „Fólk er í Sósíalistaflokknum af mörgum ástæðum og Evrópusambandið er ekkert þungamiðjan. Þetta er ekki þannig mál að það skeri úr um það hvort þú sért sósíalisti eða ekki; sósíalisminn er miklu víðari.“ Jón segir hins vegar umhugsunarefni að flest rök á móti Evrópusambandinu komi nú frá hægrinu, sem fólk upplifi í hagsmunabaráttu fyrir auðvaldið. Það megi að einhverju leyti rekja til þess að Vinstri græn lögðu blessun sína yfir aðildarumsókn árið 2009. „Í huga fólks verður þetta bara, þú veist, hægra fólk og sérhagsmunagæsla einhverra auðjöfra í kvótakerfinu og svo framvegis, að þeir séu á móti ESB. En það er bara alls ekki svo einfalt og klippt og skorið.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira