Viðræður við Íran hefjist á morgun Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. ágúst 2026 22:48 Trump ræddi við blaðamenn um borð í flugvél sinni. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti segir viðræður við Íran um að binda enda á stríðið í Persaflóa munu hefjast á morgun, mánudag. Þær munu líklega fara fram í gegnum milliliði.
Þessu greindi Bandaríkjaforseti frá í samtali við blaðamenn um borð í flugvél hans Air Force One. „Við erum að tala við þá [Írani] í formi samningaviðræðna. Það hefst á morgun síðdegis og við sjáum til hvernig gengur,“ sagði hann. „Mig langar að gera það. Það myndi bjarga mörgum mannslífum, mikið af óþarfa valdbeitingu, í hreinskilni sagt. Við erum tilbúin hvenær sem er. Vil ég frekar semja? Ég er ekki að reyna að drepa fólk, því margir deyja. Við viljum það ekki. Þannig að þeir báðu okkur, Íranar sérstaklega, en hinir þrír líka, þeir báðu okkur,“ sagði Trump. Þar vísar hann til þess að samtöl við leiðtoga Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Katars og Írans hafi orðið til þess að hann hætti við „gríðarlega árás“ á föstudaginn var. Hann sagði jafnframt að hugsanlega yrði gerður samningur um stjórn á umferð um Hormússund, og að samningur myndi nást um að Íran hætti kjarnorkuvopnaþróun. Í nótt sagði Trump á samfélagsmiðlum að hann hefði samþykkt að hætta við frekari árásum gegn því skilyrði að samkomulag næðist fljótt. Samkomulagið sem sé í burðarliðnum „myndi fela í sér tafarlausa, fullkomna og algera OPNUN HORMÚSSUNDS og að endi verði bundinn á kjarnorkuógn Írans“.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Sjá meira