Elísa með met í fyrsta hlaupinu eftir mánuð í meiðslum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 12:00 Sigurjón Ernir Sturluson, Elísa Kristinsdóttir og Einar Árni Gíslason náði öll að setja nýtt brautarmet í ár. @sulurvertical Þrjú brautarmet féllu í Súlum Vertical-fjallahlaupinu sem fór fram í kringum Akureyri um verslunarmannahelgina. Sigurjón Ernir Sturluson, Elísa Kristinsdóttir og Einar Árni Gíslason náðu öll að setja nýtt met. Sigurjón Ernir setti sitt met í Súlum en hin tvö í Fálkanum.
Fálkinn er nítján kílómetra stígahlaup með 530 metra hækkun en Súlur er 29 kílómetra fjallahlaup með 1410 metra hækkun. Sigurjón Ernir kláraði sitt 29 kílómetra hlaup á tveimur klukkutímum, 25 mínútum og 10 sekúndum. Hann var rúmum fimm mínútum á undan Halldóri Hermanni Jónssyni sem varð annar. Grétar Örn Guðmundsson var svo þriðji. Gamla metið átti Snorri Björnsson sem kláraði Súlurnar á 2:25:59 klst árið 2023. Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir kom fyrst kvenna í mark í Súlum á tímanum 3 klukkutímum, 3 mínútum og 12 sekúndum. Einar Árni Gíslason kláraði Fálkann á einum klukkutíma, sautján mínútum og 30 sekúndum og kláraði meira en þremur mínútum á undan Ásgeiri Daða Þórissyni. Árni Björn Höskuldsson varð þriðji. Fyrrnefndur Sigurjón Ernir missti þarna metið sitt en hann var tíu sekúndum lengur með Fálkann árið 2023. Elísa Kristinsdóttir kláraði Fálkann á einum klukkutíma, 23 mínútum og 32 sekúndum og kláraði tæpum þremur mínútum á undan Fanneyju Guðmundsdóttur. Katla Rut Róbertsdóttir Kluvers varð þriðja. Gamla metið átti Íris Anna Skúladóttir sem hljóp Fálkann á einum klukkutíma, 23 mínútum og 58 sekúndum árið 2023. View this post on Instagram A post shared by Súlur Vertical (@sulurvertical) Elísa var tekin í viðtal á samfélagsmiðlum hlaupsins eftir að hún kom í mark og spurð hvernig henni liði. „Bara mjög vel og bara geggjað að vera komin hingað og fá að hlaupa. Þetta var bara æðislegt, mjög gaman,“ sagði Elísa en bjóst hún við meti? „Það var alveg markmiðið en ég var að horfa á 1: 25 og er aðeins undir því. Þannig að það er bara geggjað. Í rauninni vissi ég ekki neitt því ég er að koma úr meiðslum. Þetta er fyrsta hlaupið í bráðum mánuði og bara geggjað að sjá að formið er enn þá til staðar,“ sagði Elísa. Þetta er annað árið í röð sem hún setur brautarmetið en stórkostlegt met hennar í Gyðjunni frá því í fyrra stendur enn en hún kláraði Gyðjuna á 10:45:17 klst. fyrir ári síðan. Aðalheiður Aðalsteinsdóttir kom fyrst kvenna í mark í Tröllinu í ár á tímanum 5:10:30 klst. en Guðlaugur Ari Jónsson varð fyrstur hjá körlunum á 04:15:53 klst. Þorbergur Ingi Jónsson var fyrstur karla í mark í Gyðjunni á tímanum 10:34:22 klst. en Hildur Aðalsteinsdóttir kom fyrst kvenna í mark í Gyðjunni. Hér fyrir ofan og neðan má sjá nýju methafana koma í mark. View this post on Instagram A post shared by Súlur Vertical (@sulurvertical) View this post on Instagram A post shared by Súlur Vertical (@sulurvertical)
Hlaup Akureyri Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira