Sló bæði metið hjá körlum og konum í einni erfiðustu þrekraun heims Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 14:30 Sophie Woods náði að hlaupa í gegnum alla Alpana á innan við þrjátíu dögum sem er magnað afrek. @sophieamygrant Nýsjálenska ofurhlauparanum Sophie Woods tókst að hlaupa í gegnum allan Alpafjallgarðinn á aðeins 29 dögum og varð þar með fljótasta manneskjan til að ljúka Via Alpina – einni erfiðustu þrekraun heims. „
Með því að gera þetta hef ég lært að elska líkama minn aftur og vera svo þakklát fyrir það sem hann getur gert fyrir mig,“ sagði Sophie Woods. Hún þurfti að hlaupa tvö þúsund kílómetra leið í gegnum átta lönd. Hún þurfti að hlaupa að meðaltali 63 kílómetra á dag með klifri sem jafngildir því að fara upp Mont Blanc á stærstu dögunum. Nagtala ng bagong rekord ang New Zealander na si Sophie Woods matapos makumpleto ang 2,000-km Via Alpina sa loob lamang ng 29 na araw, na mas mabilis sa dating rekord na 35 araw.https://t.co/26733QhYgp— SMNI News (@smninews) August 3, 2026 Með því að klára þetta á 29 dögum sló hún ekki aðeins kvennametið heldur einnig met karlanna. Kvennametið var 38 dagar en karlametið er 35. Hún bætti því kvennametið um níu daga og karlametið um sex daga. Eftir að hafa gengið í gegnum árangurslausa frjósemismeðferð, þar á meðal glasafrjóvgun, segir Sophie að hún hafi viljað að „líf hennar liti öðruvísi út“. Þegar hún ákvað að takast á við áskorunina að hlaupa Via Alpina stefndi hún á metið. Leiðin fylgir Alpafjöllunum endilöngum með hækkun sem jafngildir því að klífa Everest-fjall tólf sinnum. Runner Sophie Woods has become the fastest person to complete the 2,000km Via Alpina ultramarathon beating both the men's and women's record.The previous record was 35 days and Woods did it in just 29 days, telling #BBCBreakfast everything from energy drinks to ice cream… pic.twitter.com/kLZmNL4yRc— BBC Breakfast (@BBCBreakfast) August 2, 2026 Hin 42 ára gamla kona hóf maraþonið 4. júlí á Ítalíu og fylgdi gönguleiðakerfi í gegnum Slóveníu, Austurríki, Þýskaland, Liechtenstein, Sviss og Frakkland áður en hún lauk hlaupinu á Miðjarðarhafsströndinni í Mónakó á laugardagskvöld. „Ég er í sjöunda himni, en algjörlega úrvinda. Ég er virkilega þreytt,“ viðurkenndi hún í færslu á samfélagsmiðlum sínum. Sophie, sem er frá Nýja-Sjálandi, og teymi hennar börðust við tvær hitabylgjur, storma, hrossaflugnasverm og gróðurelda sem leiddu til þess að hún þurfti að taka á sig krók sem bætti fimm kílómetrum og 200 metrum af hættulegri klifurhækkun við leið hennar. View this post on Instagram A post shared by BBC Global Women (@bbcglobalwomen)
Hlaup Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira