Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2026 09:02 Niklas Castro segir fáránlegt ef hann verður dæmdur í bann fyrir að sýna puttann í leik Brann og Rosenborg. Yfirmaður VAR hjá norska knattspyrnusambandinu viðurkennir að teymið á leik Brann og Rosenborg hafi gert mistök með því að taka ekki eftir því þegar Niklas Castro rétti löngutöng upp í loft framan í sjónvarpsmyndavél.
Brann sigraði Rosenborg, 3-2, á dramatískan hátt í norsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Freyr Alexandersson sneri þá aftur til Björgvinjar, tveimur mánuðum eftir að hafa verið látinn fara frá Brann. Castro skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Brann. Eftir það sýndi hann fingurinn og sagði „fuck you“ í sjónvarpsmyndavélina en það fór framhjá VAR-teyminu. „Þetta atvik er eitthvað sem VAR-teymið hefði getað skoðað en þeir tóku ekki eftir því,“ segir Svein Oddvar Moen, yfirmaður VAR, í samtali við VG. „Það þegar fingurinn fór á loft og orðin voru sögð náðist ekki af VAR-teyminu því þeir voru að athuga hvort eitthvað hefði gerst í aðdraganda marksins.“ Að sögn Moens hefði Castro getað fengið rauða spjaldið ef VAR-teymið hefði tekið eftir athæfi hans. Sjálfur segist hann ekki hafa meint neitt illt með þessu. „Það er bara margt í gangi, mikið sem hefur gerst og það sauð upp úr. Hlutirnir urðu eins og þeir urðu. Þessu var ekki beint til neins, gegn neinum,“ sagði Castro. Þótt honum hafi ekki verið refsað meðan á leiknum á sunnudaginn stóð er hann ekki alveg sloppinn. Ákærunefnd norska knattspyrnusambandsins hefur nefnilega heimild til að dæma menn í bann eftir á vegna atvika sem dómarinn og/eða VAR-teymið missti af. „Ef þeir ákveða að gera það finnst mér það fáránlegt en það er þeirra að ákveða„“ sagði Castro um mögulegt leikbann. Kristall Máni Ingason skoraði annað mark Brann í leiknum á sunnudaginn. Hann jafnaði metin í 2-2 á 75. mínútu en í uppbótartíma skoraði Kristian Eriksen sigurmark heimamanna. Með sigrinum komst Brann upp í 6. sæti deildarinnar. Rosenborg er í því tíunda. Fjórum stigum munar á liðunum.
Norski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira