Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Birgir Olgeirsson skrifar 5. ágúst 2026 11:32 Ólafur Ragnar Grímsson telur að langstærsti hluti þess sem aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi fela í sér liggi þegar fyrir og sé ekki samningsatriði. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, telur að já-niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst verði túlkuð erlendis sem endurnýjuð ósk Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Hann varar við því að litið sé á atkvæðagreiðsluna sem einfalda heimild til að kanna hvað sé í boði í viðræðum við sambandið. Þá sé engin lagaleg eða formleg trygging fyrir því að endanlegur aðildarsamningur verði síðar borinn undir þjóðina. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna. Ef svarið við þeirri spurningu er já yrði farið í aðildarviðræður þar sem niðurstaðan yrði borin undir þjóðina í annari atkvæðagreiðslu. Ólafur Ragnar ræddi komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu í ítarlegu viðtali í Spjallinu með Frosta Logasyni. „Þeir hlógu“ Í viðtalinu sagði Ólafur Ragnar frá nýlegum samtölum sínum í París við tvo menn sem gjörþekktu starfsemi og eðli Evrópusambandsins. Annar væri háttsettur fyrrverandi embættismaður sem hefði starfað um árabil innan framkvæmdastjórnar sambandsins en hinn blaðamaður sem sérhæfði sig í málefnum ESB í Brussel. Ólafur Ragnar sagðist hafa útskýrt fyrir þeim þá afstöðu sem heyrst hefði hér á landi, að já-atkvæði 29. ágúst fæli ekki endilega í sér vilja til inngöngu í Evrópusambandið. Með því væri aðeins verið að afla heimildar til að kanna hvað væri í boði. Viðbrögð þeirra hefðu verið afdráttarlaus. „Þeir hlógu,“ segir Ólafur Ragnar. „Þeim fannst þetta svo vitlaust. Þeim fannst þetta svo út úr kú og í engum tengslum við eðli Evrópusambandsins.“ Hann vildi ekki nafngreina mennina en telur að íslensk stjórnvöld gætu lent í erfiðri stöðu ef þau færu til Brussel eftir já-niðurstöðu og héldu því fram að Íslendingar væru aðeins komnir til að sjá hvað væri í boði. „Það er ekki til í leikjabók Evrópusambandsins að setjast að borði við einhverja sem eru komnir bara til að sjá,“ sagði Ólafur Ragnar. Segir 95 prósent þegar liggja fyrir Ólafur Ragnar gagnrýnir að umræðan hér á landi hafi að hans mati einkum snúist um mögulegar undanþágur og einstök verðlagsmál. Minna hafi farið fyrir umræðu um grundvallaruppbyggingu og valdakerfi Evrópusambandsins. Hann nefnir þar sérstaklega Lissabonsáttmálann, sem furðu lítið hafi verið fjallað um í aðdraganda kosninganna. Að mati Ólafs Ragnars liggur langstærsti hluti þess sem aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi fela í sér þegar fyrir og er ekki samningsatriði. „Það verður ekki búin til einhver séríslensk útgáfa af Evrópusambandinu bara fyrir okkur,“ segir hann. Hann metur það svo að 95 prósent af stofnana- og ákvörðunarkerfi sambandsins liggi þegar fyrir. Hugsanlegar undanþágur myndu því aðeins ná til lítils hluta heildarinnar. Áhrifin kæmu fram strax Ólafur Ragnar hafnar þeirri sýn að lítil áhætta fylgi því að samþykkja viðræður nú, þar sem Íslendingar geti einfaldlega hafnað samningi síðar. Já-niðurstaða myndi að hans mati hafa áhrif strax. „Allur umheimurinn [mun] skilja þá ákvörðun með réttu [...] að Ísland hafi endurvakið óskina um að ganga í Evrópusambandið.“ Hann telur að niðurstaðan gæti meðal annars haft áhrif á viðskiptasambönd Íslands og möguleika landsins til að þróa eða gera fríverslunarsamninga meðan aðildarferlið stæði yfir. Ferlið gæti jafnframt tekið mun lengri tíma en margir gerðu ráð fyrir. Öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins þyrftu að samþykkja einstaka áfanga og sambandið réði því að stórum hluta hversu hratt viðræðurnar gengju. „Evrópusambandið getur dregið þessar viðræður á langinn í fimm eða tíu ár ef því bara sýnist,“ segir Ólafur Ragnar. Engin trygging fyrir annarri atkvæðagreiðslu Ólafur Ragnar fjallaði einnig um þá forsendu margra kjósenda að þeir fengju annað tækifæri til að greiða atkvæði þegar endanlegur aðildarsamningur lægi fyrir. Hann segir enga formlega tryggingu fyrir því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram. „Það er ekkert í ferlinu, hvorki af hálfu Evrópusambandsins né af hálfu íslenska stjórnkerfisins, sem gerir það nauðsynlegt að hafa aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Ólafur Ragnar tekur skýrt fram að honum þætti mjög óeðlilegt ef endanlegur samningur yrði ekki lagður fyrir þjóðina. Ekki væri þó hægt að ganga út frá því fyrir fram sem tryggri niðurstöðu. „Það yrði mjög skrýtið, en ég vek bara athygli á því: Það er engin trygging fyrir því.“ Kjósendur sem samþykki viðræður í þeirri trú að þeir geti tekið endanlega afstöðu síðar séu því að hans mati að taka áhættu. „Þeir sem ætla að segja já á grundvelli þess að það komi samningur og þá geti þeir hugsað málið, og þá verði þjóðaratkvæðagreiðsla, eru bara að veðja á óvissu,“ segir Ólafur Ragnar. Hann telur því að meira sé undir í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst en ætla mætti af málflutningi um að með já-atkvæði sé aðeins verið að kanna hvað sé í boði.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ólafur Ragnar Grímsson Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Sjá meira