Sport

Dag­skráin: Evrópuleikir Víkinga og Vals­manna í beinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur skilað þremur mörkum í tveimur leikjum Vals í Evrópukeppninni í sumar.
Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur skilað þremur mörkum í tveimur leikjum Vals í Evrópukeppninni í sumar. Vísir/Diego

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Víkingar og Valsmenn spila bæði fyrri leik sinn í baráttu um að komast í umspil um laus sæti í riðlakeppni Evrópu- og Sambandsdeildarinnar í vetur. Það verður einnig leikur í Bestu deild kvenna og leikur á undirbúningstímabili NFL.

Víkingar heimsækja svissnesku meistarana í Thun í fyrri leik sínum í undankeppni Evrópudeildarinnar og þurfa hagstæð úrslit fyrir seinni leikinn í Víkinni í næstu viku. Valsmenn taka aftur á móti danska liðinu Nordsjælland í fyrri leik sínum í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Stjarnan fær Þrótt í heimsókn í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Það styttist í NFL-tímabilið og í nótt fáum við að sjá fyrsta leik undirbúningstímabilsins í beinni þegar Arizona Cardinals mætir Carolina Panthers í Pro Football Hall of Fame Game-leiknum.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 18.20 hefst bein útsending frá fyrri leik Vals og Nordsjælland í undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá fyrri leik Thun og Víkings í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Stjörnunnar og Þróttar í Bestu deild kvenna í fótbolta.

SÝN Sport

Klukkan 00.00 hefst bein útsending frá viðureign Arizona Cardinals og Carolina Panthers í Pro Football Hall of Fame Game leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×