Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2026 17:03 Gianni Infantino reynir að halda starfi sínu sem forseti FIFA og fer ýmsar leiðir í þeirri baráttu. EPA/CHRISTOPHER TORRES Gianni Infantino, forseti FIFA, er að berjast fyrir því að halda starfi sínu og virðist nú beita alls konar aðferðum til að tryggja sér áframhaldandi stuðning hjá knattspyrnusamböndum heimsins.
Nýjustu fréttir af útspili hins umdeilda forseta eru að hann hafi boðið Marokkó að halda úrslitaleik heimsmeistaramótsins í skiptum fyrir stuðning við sig. Þetta kemur fram í frétt hjá Times. Forseti FIFA reynir að sannfæra lönd um að gefa út stuðningsyfirlýsingar á meðan þrýstingur eykst á hann að segja af sér. Kosið verður um forseta FIFA á næsta ársþingi sambandsins. 🔺EXCLUSIVEGianni Infantino offers Morocco World Cup final in exchange for supportFifa president is trying to persuade countries to issue statements of endorsement as pressure builds on him to resign✍️ @martynziegler https://t.co/mIqneURiqx— Times Sport (@TimesSport) August 5, 2026 Marokkó heldur næsta heimsmeistaramót með Spáni og Portúgal árið 2030 en það er ekki enn búið að ákveða hvar úrslitaleikurinn fer fram. Þar stendur baráttan fyrst og fremst á milli Spánar og Marokkó en Spánverjar gera kröfu um að fá þann heiður. Samband Infantinos við marokkóska embættismenn hefur verið talið mikilvægur þáttur í samkeppninni milli Spánar og Marokkó um réttinn til að halda úrslitaleikinn. Forseti FIFA hefur hrósað fótboltamenningu Marokkó og ástríðufullum stuðningi þjóðarinnar við landslið sitt. Tilboð Infantinos kemur í kjölfar krísufundar embættismanna FIFA, þar sem kröfur um afsögn hans hafa magnast vegna umdeildra áætlana hans um að selja hluti í heimsmeistaramótinu. Marokkó stefnir að því að halda úrslitaleikinn á nýja Hassan II-leikvanginum í Casablanca, sem verður stærsti fótboltaleikvangur heims þegar hann verður fullbúinn, enda á hann að rúma 115 þúsund áhorfendur.
FIFA Marokkó HM 2030 í fótbolta Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira