Finnst Salah taka niður fyrir sig með því að fara til Tyrklands Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2026 09:01 Mohamed Salah skrifaði undir tveggja ára samning við Trabzonspor. epa/STR Jamie Carragher telur að Mohamed Salah hefði getað samið við betra lið en Trabzonspor. Hann er kominn til tyrkneska liðsins á frjálsri sölu eftir tæpan áratug hjá Liverpool.
Carragher finnst Salah vera að taka niður fyrir sig með því að fara til Tyrklands að spila fótbolta. „Ég trúði því aldrei að hann færi til Sádi-Arabíu því, númer eitt, er hann of góður fyrir það. Mér finnst hann geta spilað í ítölsku úrvalsdeildinni. Tyrkland er of lágt getustig,“ sagði Carragher við Sky Sports. „Ég var viss um að hann myndi enda hjá AC Milan eða Juventus eða einhverju svoleiðis liði. Kannski eru launin hans vandamálið. Ég þekki hann ekki og hef augljóslega aldrei talað við hann. En hann er eins og Cristiano Ronaldo; svo drifinn áfram og tölfræðin skiptir hann svo miklu máli. Ég hugsaði, hann getur enn spilað í Tyrklandi en ég hélt að hann vildi spila fyrir stærra félag.“ Carragher taldi að Salah myndi slá af launakröfum sínum til að komast í sterkara lið. „Að fara til AC Milan eða Juventus, eða hvert sem er, spila á San Siro, í þessum stóru leikjum, enn í Evrópu. Tyrkland ... mér finnst hann vera betri en það,“ sagði Carragher. Við komuna til Tyrklands í gær biðu hundruðir stuðningsmanna Trabzonspor eftir Salah á flugvellinum og fögnuðu honum. Trabzonspor endaði í 3. sæti tyrknesku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Liðið hefur sjö sinnum orðið Tyrklandsmeistari, síðast 2019-20. Hjá nýja liðinu mun Salah leika í treyju númer 61. Það er póstnúmerið í Trabzon, heimaborg Trabzonspor.
Tyrkneski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira