Tvö mörk, stoðsending og met hjá Messi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2026 13:30 Lionel Messi skoraði í gær sín fyrstu mörk fyrir Inter Miami eftir HM. getty/Carmen Mandato Lionel Messi lét heldur betur til sín taka í fyrsta leik sínum í byrjunarliði Inter Miami eftir heimsmeistaramótið.
Messi og félagar í Inter Miami sigruðu Atlético de San Luis, 4-2, í fyrsta leik sínum í deildabikarnum, sumarmóti þar sem lið frá Bandaríkjunum og Mexíkó etja kappi. Inter Miami lenti undir snemma leiks en Messi jafnaði með góðu skoti á lofti á 11. mínútu. Einni mínútu fyrir hálfleik kom Messi Inter Miami í 3-1 eftir sendingu frá Noah Allen sem lagði upp þrjú mörk í leiknum. Þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik skoraði Micael með skalla eftir hornspyrnu frá Messi og Inter Miami fór með 4-1 forystu til búningsherbergja. Atlético de San Luis lagaði stöðuna í upphafi seinni hálfleiks en sigur Inter Miami var ekki í hættu. Messi er orðinn markahæstur í sögu deildabikarsins, síðan liðum í keppninni var fjölgað fyrir þremur árum. Messi hefur skorað fjórtán mörk í Leagues Cup. Hann leiddi Inter Miami til sigurs í keppninni 2023, skömmu eftir að hann kom til bandaríska liðsins. Messi sneri aftur í lið Inter Miami þegar það gerði 2-2 jafntefli við Columbus Crew í MLS-deildinni á sunnudaginn. Argentínumaðurinn kom inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks. Inter Miami er í 2. sæti Austurdeildar MLS með 38 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Nashville. Næsti deildarleikur Inter Miami er einmitt gegn Nashville á útivelli 16. ágúst. Messi er næstmarkahæstur í MLS á tímabilinu með tólf mörk í fimmtán leikjum. Hann hefur einnig gefið sjö stoðsendingar.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira