Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. ágúst 2026 21:02 Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi í fjármunadeild lögreglunnar. Vísir/Lýður Valberg Sakborningar í umfangsmiklu fjárkúgunarmáli eru nú tíu talsins. Brotaþolar eru þrír en lögreglan hefur upplýsingar um að þeir kunni að vera talsvert fleiri og hvetur fólk sem kann að hafa orðið fyrir barðinu á svikurum að stíga fram.
Fréttastofa fjallaði í síðasta mánuði um mál manns á áttræðisaldri sem hafði alls misst 108 milljónir í hendur hóps fjárkúgara sem herjuðu á hann yfir um fjórtán mánaða tímabil. Kúgunin náði hámarki þann 17. júní þegar að sérsveit lögreglu var kölluð til á heimili mannsins þar sem honum var hótað með eggvopni. Rannsókn lögreglu á málinu er umfangsmikil. Upprunalega var greint frá því að þrír hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins en rétt er að sex hafi verið handteknir og þar af fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Einn þeirra var síðan úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Í kjölfarið voru fjórir aðrir kallaðir til yfirheyrslu og hlutu einnig stöðu sakbornings. Allt í allt eru því tíu sakborningar í málinu sem grunur leikur á um að hafa kúgað fé af þremur aðilum. Enginn sætir gæsluvarðhaldi eins og stendur. Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi í fjármunadeild lögreglunnar, segir rannsókninni miða vel en telur þó að enn fleiri brotaþolar séu undir í málinu. „Við erum komin með frekar góða yfirsýn á málið. Staðan er samt sú að við teljum að það séu fleiri brotaþolar sem við höfum ekki náð til í þessu máli.“ Þá fleiri brotaþolar sem hafa orðið fyrir barðinu á sömu sakborningum? „Já, við teljum það.“ Heildarupphæðin nemur meira en hundrað milljónum. „Það er enn þá til rannsóknar. Við þurfum líka að skoða það í því samhengi að grunur er um að það sé eitthvað af reiðuféi líka sem þarf að ná utan um,“ segir hún og tekur fram að til rannsóknar sé hvernig endurheimt fésins verður. Tengist þetta að einhverju leyti skipulagðri brotastarfsemi, er hægt að segja það? „Í rauninni eru komnir þarna aðilar sem vinna saman að þessum fjárkúgunum og það er þá eitt af því sem er til rannsóknar hvort þetta falli undir skipulagða brotastarfsemi eða ekki.“ Tengsl sakborninganna tíu eru nú til rannsóknar. Sakborningarnir tengjast ekki. „Við getum í rauninni aldrei vitað hversu algengt þetta er, því þetta virðist vera tegund brotmála sem er erfitt fyrir brotaþola að tilkynna. Vegna stöðu þeirra sjálfra eða einhvers slíks. Auðvitað viljum við bara hvetja fólk sem að verður fyrir svona brotum að hafa samband við okkur.“ Er þetta eitthvað sem er að vinda upp á sig í auknum mæli hér á landi? „Netglæpir yfir höfuð og ástarsvik þar undir eru eitthvað sem er að rjúka upp.“ Hvers konar aðferðum er beitt við kúgun? „Það er mismunandi og ég ætla ekki að alhæfa um það hvaða aðferðum er beitt. Þetta eru ekki einhverjar aðferðir sem við erum að sjá í fyrsta skipti. Þetta er því miður ein leið fjárkúgunar sem notuð er gegn brotaþolum í þessum tegundum brota. Þetta er eitthvað sem þarf að stöðva sem fyrst. Við hvetjum brotaþola að leita til okkar. Þetta á ekki að fá að viðgangast.“
Efnahagsbrot Lögreglumál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira