Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 14:03 Donald Trump birti þessar tvær myndir á samfélagsmiðlinum sínum. Truth Social Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur enn á ný gefið í skyn að hann muni sækjast eftir embættinu fyrir þriðja kjörtímabilið. Hann birti fjöldann allan af gervigreindarmyndum á samfélagsmiðlum.
Trump er eigandi samfélagsmiðilsins Truth Social og tekur hann tímabil þar sem hann birtir fjöldann allan af færslum í einu. Hann tók eitt slíkt í nótt, gærkvöldi á hans tíma, þar sem hann birti töluvert af myndum sem virðast flestar við fyrstu sín vera búnar til af gervigreindarforriti. Þar á meðal eru myndirnar tvær hér fyrir ofan sem gefa í skyn framboð til forseta. Trump gegnir núna öðru embætti sínu sem forseti og samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna má hann ekki gegna embættinu aftur að kjörtímabilinu loknu. Við aðra myndina skrifaði hann „bara grín!“. Þrátt fyrir það er þetta ekki í fyrsta skipti sem forsetinn segist ætla að bjóða sig aftur fram, nú síðast í júlí. Það var á kvöldverði samtaka fréttaritara í Hvíta húsinu sem hann setti á sig derhúfu sem á stóð Trump 2028. Fyrir örfáum dögum hafði Washington Post eftir heimildarmönnum sínum að Trump hefði nýlega sagt við fjársterka stuðningsmenn sína á lokuðum fundi að þeir ættu að styðja við hugsanlegt framboð JD Vance varaforseta í forsetakosningunum 2028. Trump birti ekki einungis myndir af sér sjálfum heldur einnig mynd þar sem hann gerði grín að Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og myndir af hernaðardrónum og hermönnum ofan á Hvíta húsinu. Trump gerði grín af golfhæfileikum Biden. „Þessi stóra og mikilvæga hernaðareign er ofan á vel vörðum danssal Hvíta hússins,“ skrifar hann við myndina. Í gær var ríkisstjórn hans skipað að stöðva byggingu nýja danssalarins sem kosta á fjögur hundruð milljónir dala. Það eigi að vera ákvörðun þingsins hvort reisa eigi risavaxinn danssal en ekki eitthvað sem framkvæmdavaldið geti tekið í sínar eigin hendur að mati alríkisáfrýjunardómstóls Bandaríkjanna. Samtökin National Trust for Historic Preservation höfðuðu mál eftir að Trump lét rífa austurálmu Hvíta hússins í fyrra og hefja uppbyggingu án samþykkis þingsins.
Donald Trump Bandaríkin Samfélagsmiðlar Gervigreind Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira