Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Bjarki Sigurðsson skrifar 10. ágúst 2026 13:00 Alltaf sól á Sandi stendur á bolunum. Það verður þó ekki sól þar í það minnsta í tvær mínútur og sjö sekúndur á miðvikudaginn. Gilbakki Mikil spenna er á öllu vestanverðu landinu fyrir almyrkvanum á miðvikudag. Veitingamaður á Hellissandi ætlar að hafa lokað til að njóta sjálfur og leyfa starfsfólki sínu að upplifa þennan sögulega viðburð.
Á Hellissandi fer tónlistarhátíðin Iceland Eclipse fram í tilefni af almyrkvanum og búist er við því að íbúafjöldi bæjarins tífaldist á meðan. Á Gilbakka, einu af kaffihúsum bæjarins, verður þrátt fyrir það lokað á meðan. Anna Þóra Böðvarsdóttir, eigandi Gilbakka, segist ætla að taka þátt í fjörinu. Þetta sé einstakur viðburður sem hún vilji ekki missa af og starfsfólkið eigi einnig skilið að njóta hátíðarinnar. „Starfsfólkið verður bara í fríi og allt eins og það á að vera,“ segir Anna. Er mikill spenningur í bænum fyrir þessu? „Já, við á Hellissandi og Rifi erum voða spennt. Það er mikið líf í bænum, fólk á göngu og rosa gaman,“ segir Anna. Allt klárt á Nesinu Á höfuðborgarsvæðinu er einn besti útsýnisstaðurinn á Seltjarnarnesi. Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri hvetur fólk til að koma gangandi og hjólandi. „Og hafa gaman. Hér eru veitingaaðilar búnir að gera klárt bæði vestanmegin og á golfvellinum. Hér er bara allt klárt til að taka á móti fullt af fólki,“ segir Þór. Þór Sigurgeirsson er bæjarstjóri Seltjarnarness.Vísir/Vilhelm Hvar ætlar þú að horfa? „Ég er að spá í að labba upp á Valhúsahæð á hæsta punktinn á Seltjarnarnesi. Ég ákvað það í heita pottinum í morgun með félögum mínum,“ segir Þór. Fólk leggi snemma af stað Búist er við gríðarlegri umferð á sunnanverðum Vestfjörðum en almyrkvinn sést í lengsta tímann frá landi á Látrabjargi. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir fólk vera byrjað að mæta á svæðið. Þar sé sannkölluð bongóblíða í dag. „Fólk er byrjað að koma og mér skilst að það hafi verið um tvö hundruð manns í mat á Hótel Breiðavík í gær. Fólk er að tínast hér inn á tjaldsvæðin og inn á Barðaströnd,“ segir Gerður. „Ég held að fólk muni dreifast um allt svæðið. Ég mæli með því að fólk leggi snemma af stað og mæti helst í dag.“ Gerður Björk Sveinsdóttir er bæjarstjóri Vesturbyggðar.Vísir/Bjarni
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Vesturbyggð Seltjarnarnes Snæfellsbær Ferðalög Veitingastaðir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira