Snæfellsbær
1 2 3 4 5 6 … 7 ›
Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Óþekktur maður lék sér á sjóbretti með háhyrningahjörð úti á sjó hjá Hellnum á Snæfellsnesi í kvöld. Einu sinni sást til hans syndandi í sjónum, en vitni sáu ekki hvort hann hafði dottið af brettinu eða stungið sér vitandi vits til sunds. Innlent 17.6.2025 22:17
Landsliðshetjur elta drauminn til Ólafsvíkur Knattspyrnukempurnar Helena Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir flytja á næstunni vestur til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Helena segir að þær hafi langað að prófa búa á landsbyggðinni og það sé hollt að prófa eitthvað nýtt áður en maður verður of gamall. Lífið 20.5.2025 21:29
Manni bjargað eftir að fiskibátur hans strandaði við grjótgarð Mannbjörg varð þegar lítill fiskibátur strandaði við grjótgarðinn fyrir utan höfnina á Rifi snemma í morgun. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Landsbjörg. Þar segir að um fjögur í nótt hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar borist neyðarkall á rás 16 frá fiskibát sem var á leið á miðin frá Rifi. Innlent 20.5.2025 07:59
Lítil Björg dró stóra Hildi í land Björgunarskipið Björg var kallað út um hádegisbil í dag vegna vélarvana skips norður af Rifi. Innlent 8.5.2025 18:46
Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Áhafnir björgunarskipanna Bjargar á Rifi og Jóns Gunnlaugssonar voru kallaðar út klukkan 9:30 í morgun vegna fiskibáts sem misst hafði vélarafl suður af Snæfellsnesi, skammt vestur af Landbrotavík. Báturinn var dreginn til hafnar á Akranesi. Innlent 22.4.2025 17:51
Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti. Innlent 11.3.2025 23:17
Sex kennarar á landinu enn í verkfalli Verkfallsaðgerðir kennara standa enn yfir þrátt fyrir ákvörðun Félagsdóms, sem komst að þeirri niðurstöðu á dögunum að aðgerðirnar væru að stærstum hluta ólögmætar. Innlent 11.2.2025 10:06
Kennaraverkföllin dæmd ólögmæt Félagsdómur dæmdi í dag verkföll Kennarasambands Íslands í 13 leikskólum og sjö grunnskólum víða um land ólögmæt. Innlent 9.2.2025 18:33
Verkföll boðuð í fimm framhaldsskólum Verkföll hefjast í Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga 21. febrúar, hafi samningar ekki náðst. Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands. Innlent 5.2.2025 15:31
Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Óvissustigi vegna ofanflóðahættu hefur verið aflétt á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum, en gert er ráð fyrir áframhaldandi óvissustigi á Austfjörðum fram til mánudags. Innlent 1.2.2025 18:58
Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Tvö snjóflóð féllu á veg á milli Ólafsvíkur og Rifs á Snæfellsnesi. Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi á Vesturlandi vegna ofanflóðahættu. Vegurinn er nú lokaður. Innlent 31.1.2025 19:59
Misstu stýrið og rak nálægt landi Björgunarsveitarmenn í Rifi á Snæfellsnesi voru kallaðir út í morgun vegna fiskibáts með tvo um borð sem hafði misst stýrið og rak nálægt landið. Innlent 29.1.2025 07:18
„Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir útlit fyrir að þekkt eldgosasvæði á Snæfellsnesi sé komið í gang, en um þúsund ár eru liðin frá síðasta eldgosi þar. Mestar líkur séu á hraungosi ekki ósvipuðum þeim sem sést hafa á Reykjanesskaganum undanfarin ár. Innlent 3.1.2025 21:01
Lengsti óróapúlsinn til þessa Lengsti óróapúlsinn í Ljósufjallakerfinu mældist við Grjótarárvatn í fjöllunum ofan Mýra síðdegis í gær. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands greinir frá á Facebook-hóp sínum. Innlent 3.1.2025 11:57
Óróahviður í Mýrafjöllum sagðar líkjast aðdraganda Reykjaneselda Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands líkir óróahviðum í Ljósufjallakerfinu við þær sem sáust í aðdraganda eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur vekur athygli á því að mun stærri jarðskjálftahrina hafi orðið í Ljósufjöllum árið 1938 með stærsta skjálfta upp á 5,2 stig. Innlent 20.12.2024 12:12
Tveir fluttir með þyrlu vegna rútuslyssins og einn fluttur vegna veikinda Rúta valt út af veginum á Fróðárheiði á Snæfellsnesi og voru tveir farþegar fluttir með þyrlu á Landspítalann en restin fóru með rútu inn í Ólafsvík þar sem búið er að opna fjöldahjálparmiðstöð. Á sama tíma var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda við Seljalandsfoss. Innlent 30.11.2024 17:53
Þyrlan kölluð út vegna rútuslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna rútuslyss á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir hafa verið kallaðar á vettvang. Innlent 30.11.2024 16:02
Þyrlan kölluð út vegna slyss en afturkölluð Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun en svo afturkölluð vegna slyss á Snæfellsnesi. Ásmundur Kristinn Ásmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að verið sé að vinna í málinu. Innlent 11.10.2024 11:45
Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Sérstök bílastæðagjöld verða tekin upp í Snæfellsjökulsþjóðgarði næsta sumar. Tekjurnar eru sögð munu breyta rekstrarumhverfi þjóðgarðsins og nýtast til að standa kostnað af þjónustu. Innlent 8.10.2024 12:57
Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Einn var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík eftir bílveltu á Arnarstapavegi á Snæfellsnesi á tólfta tímanum í dag. Innlent 27.9.2024 12:43
Skrúfan óvirk eftir að hafa siglt á rekald Áhöfn björgunarskipsins Bjargar á Snæfellsnesi var kölluð út um 20:30 í gærkvöldi vegna lítils fiskibáts sem var í vandræðum. Báturinn hafi siglt á rekald í sjónum með þeim afleiðingum að skrúfan varð óvirk þó að vélin sjálf gengi. Innlent 30.8.2024 07:29
Björguðu manni úr sjálfheldu nærri Rauðfeldsgjá Björgunarsveitarmenn björguðu í gær manni sem hafði komið sér í sjálfheldu í gili austan Rauðfeldsgjár á Snæfellsnesi. Innlent 29.8.2024 07:30
Sérsveit þurfti ekki að skerast í leikinn vegna ferðamanns á tjaldstæði Lögreglan á Vesturlandi óskaði eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra í gærkvöldi vegna tilkynningar um mann með hnífa. Sérsveitin þurfti þó ekki að fara í neina sérstaka aðgerð vegna málsins, en lögreglan á Vesturlandi útkljáði málið sjálf. Innlent 17.7.2024 10:44
„Mjög mikil úrkoma“ veldur skriðuhættu Gert er ráð fyrir mjög mikilli úrkomu á sunnanverðum Vestfjörðum og á Snæfellsnesi um helgina. Veðurstofan varar við vatnavöxtum og aukinni skriðuhættu á þessum svæðum. Veður 12.7.2024 13:23
Myndir: Dýrðardagur á Snæfellsnesi Tvö skemmtiferðaskip komu við í Grundarfirði í gær og iðaði bærinn af lífi. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis var á Snæfellsnesi í gær með myndavélina á lofti og festi mannlífið á filmu. Lífið 9.7.2024 14:20
Fluttur á sjúkrahús eftir slys á Snæfellsnesi Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag vegna slyss á Snæfellsnesi. Einn var fluttur með þyrlu og lenti við sjúkrahúsið í Fossvogi fyrir stuttu. Innlent 8.7.2024 19:00
Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Ferðalangur sem varð vitni að því þegar bíl spænskra ferðamanna var ekið á lamb í gær segir lausagöngu kinda nærri þjóðvegum rómantík sem fari ekki saman við nútímann. Innlent 29.6.2024 14:56
Ísklumpur féll á ferðamann Maður lenti undir ísklumpi við Rauðfeldsgjá í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en henni hefur nú verið snúið við. Betur fór en á horfðist í fyrstu. Innlent 28.6.2024 12:00
Sinubruni í Staðarsveit á Snæfellsnesi Eldur kviknaði í sinu í nágrenni eyðibýlisins Haga í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Slökkviliðsmenn frá Snæfellsbæ og Grundafirði eru komnir á vettvang og slökkvilið Stykkishólms er á leiðinni. Innlent 5.6.2024 19:36
Snurvoðarbátur lenti í vanda við Melrakkaey Upp úr klukkan hálf níu í morgun var áhöfn björgunaskipsins Björg á Rifi kölluð út vegna snurvoðarbáts sem hafði misst vélarafl. Báturinn var þá vestur af Melrakkaey fyrir utan Grundarfjörð. Einnig var áhöfn á björgunarbátnum Reyni frá Grundarfirði kölluð út. Innlent 23.5.2024 14:00