Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. ágúst 2026 07:15 Svo virðist sem Trump hafi aðeins verið um borð í gömlu Air Force One í stutta stund þegar hann yfirgaf vélina á Mildenhall. Ef marka má Washington Post, flaug hann þangað í allt annarri vél. Getty/Win McNamee Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa flogið frá Tyrklandi til Bretlands um borð í „gömlu“ Air Force One forsetaflugvélinni, eins og áður hafði verið greint frá. Hann virðist þess í stað hafa verið fluttur úr þeirri vél í aðra vél í fylgdarflota Air Force One, án þess að aðrir væru látnir vita.
Greint var frá því í júlí síðastliðnum að Trump hefði flogið frá Tyrklandi til Bretlands um borð í gömlu vélinni, þrátt fyrir að hann hefði flogið til Tyrklands frá Bandaríkjunum í nýrri vél sem var gjöf frá Katar. Málið vakti nokkra athygli og jók á vangaveltur um öryggi nýju vélarinnar en sjálfur sagði Trump að nýja vélin hefði verið send á undan til að gefa bandarískum hermönnum á Bretlandseyjum tækifæri til að skoða hana. Nú hefur Washington Post hins vegar greint frá því að samkvæmt heimildum blaðsins hafi Trump ekki verið um borð í gömlu Air Force One þegar henni var flogið frá Tyrklandi til Bretlands. Forsetinn hafi vissulega stigið um borð, eins og sást á upptökum og myndum frá vettvangi, en síðan yfirgefið vélina út um hina hliðina og verið fluttur í fylgdarvél með flutningabifreið sem venjulega er notuð til að ferja mat og önnur gögn milli flugstöðvarinnar og flugvéla á vellinum. Athygli vekur að sumir starfsmanna Hvíta hússins og blaðamenn sem voru um borð í gömlu vélinni og töldu að þeir væru í fylgd forsetans, voru ekki upplýstir um að hann hefði verið fluttur í aðra vél. Þeir voru hins vegar beðnir um að draga fyrir gluggana, án útskýringa. Samkvæmt Washington Post flaug Trump þannig til Bretlands um borð í C-32A, breyttri Boeing 757 vél sem notuð er til að ferja bandaríska embættismenn. Vélin er búin varnarbúnaði og hefur verið notuð til að flytja forsetann og varaforsetann og notar þá kallmerkið Air Force One eða Air Force Two en gerði það ekki að þessu sinni. Þegar komið var til Bretlands og vélarnar voru lentar á Mildenhall herstöðinni, var Trump fluttur aftur um borð í gömlu Air Force One án þess að tekið væri eftir og yfirgaf svo þá vél með hefðbundnum hætti, fyrir framan myndavélarnar. Samkvæmt heimildarmönnum Washington Post var gripið til sjónhverfingarinnar vegna ógnar frá Íran. Hvíta húsið hefur ekki svarað spurningum um málið en sagt að allra leiða sé leitað til að tryggja öryggi forsetans.
Bandaríkin Donald Trump Bretland Tyrkland Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Dagný Ósk látin Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira