Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. ágúst 2026 12:11 Gera má ráð fyrir að forsetatilskipuninni verði skotið til dómstóla. Getty/Anna Moneymaker Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið út forsetatilskipun sem felur meðal annars í sér að bólusetningum barna verður fækkað úr átján í ellefu. Tilskipunin er í takt við fyrirhugaðar breytingar heilbrigðisráðherrans Robert F. Kennedy Jr. sem tilkynnt var um fyrr á árinu en þær hafa verið stöðvaðar af dómstólum.
Þess ber að geta að tilskipun Trump sé ekki líkleg til að leiða til umsvifalausra breytinga á bólusetningum, enda eru þær á forræði einstakra ríkja. Kennedy sagði enda í gær að tilgangurinn væri ekki að koma í veg fyrir bólusetningar, heldur að gefa foreldrum val. Margir skólar gera kröfu um bólusetningar í samræmi við ráðleggingar Sóttvarnarstofununar Bandaríkjanna en þeim hefur ekki verið breytt, enn sem komið er. Þrátt fyrir að breytingarnar sem lagðar hafa verið til séu umdeildar vestanhafs, eru nýjar ráðleggingar áþekkar þeim sem þekkjast til að mynda á Íslandi. Ef börn yrðu bólusett samkvæmt forsetatilskipuninni yrði bólusett gegn barnaveiki, haemofilus influenzae sjúkdóm af gerð b, hettusótt, hlaupabólu, HPV, kíghósta, mislingum, mænusótt, pneumokokkum, rauðum hundum og stífkrampa. Hér á landi er bólusett gegn tveimur sjúkdómum til viðbótar; rótaveiru og meningókokkum en vestanhafs yrði bólusett gegn þeim meðal viðkvæmra hópa og/eða í samráði við lækna. Forsetatilskipunin felur hins vegar einnig í sér breytingar á tímasetningum bólusetninganna og þá vilja yfirvöld aðgreina bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum. Bólusett er gegn þessum sjúkdómum með einni sprautu og eins og stendur er ekki mögulegt að fá bólusetningu gegn einum sjúkdómi en ekki hinum. Yfirvöld vestanahafs hafa gert því skóna að tengsl séu á milli svokallaðrar MMR bólusetningar og einhverfu en engar rannsóknir styðja þá niðurstöðu.
Bandaríkin Donald Trump Bólusetningar Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira