Sport

Dag­skráin: Úr­slita­stund í Víkinni og Nablinn á N1-móti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar hafa unnið marga Evrópuleiki í Víkinni síðustu ár og þeir þurfa stórkostlega frammistöðu í kvöld ætli þeir áfram í umspil Evrópudeildarinnar.
Víkingar hafa unnið marga Evrópuleiki í Víkinni síðustu ár og þeir þurfa stórkostlega frammistöðu í kvöld ætli þeir áfram í umspil Evrópudeildarinnar. Pawel/Vísir

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Íslandsmeistarar Víkings fá svissnesku meistarana í Thun í heimsókn í seinni leik liðanna í þriðju umferð undankeppni Evrópudeildarinnar en í boði er sæti í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Víkingar töpuðu fyrri leiknum 3-0 og eiga því afar krefjandi verkefni fyrir höndum.

Það verður einnig nýr þáttur af Sumarmótunum um N1-mót stúlkna sem fór fram á Akureyri um síðustu helgi en Nablinn, Andri Már Eggertsson, var á staðnum og fylgdist með því sem fram fór.

Eyjakonur taka á móti Stjörnunni í næstsíðasta leik fimmtándu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Nú styttist í að enski boltinn fari aftur af stað og það er tilvalið að hita upp fyrir komandi tímabil með því að horfa á nýja kynningarþáttinn, Preview of the Season.

Það er einnig hægt að sjá beina útsendingu frá fyrsta degi á danska meistaramótinu í golfi, Danish Golf Championship, sem og beina útsendingu frá The Standard Portland Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 17.20 hefst bein útsending frá seinni leik Víkings og Thund í þriðju umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

Klukkan 19.20 hefst nýjasti þáttur Sumarmótanna þar sem fjallað verður um N1-mót stúlkna á KA-svæðinu á Akureyri.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá leik ÍBV og Stjörnunnar í Bestu deild kvenna í fótbolta.

SÝN Sport

Klukkan 20.40 hefst Preview of the Season, kynningarþáttur fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

SÝN Sport 4

Klukkan 11.00 hefst bein útsending frá danska meistaramótinu í golfi, Danish Golf Championship, á DP World Tour.

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá The Standard Portland Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×